FRÆ: Ofbeldi gegn kennurum

Soffía Ámundadóttir kennari fjallaði um ofbeldi gegn kennurum á öðrum FRÆ fyrirlestri ársins.
Ofbeldishegðun og hegðunarvandi er vaxandi innan skólakerfisins. Rannsóknir sýna að nemendur beita ofbeldi meðal annars vegna vanlíðunar, geðrænna erfiðleika, skorts á viðeigandi bjargráðum í samskiptum.
Soffía Ámundadóttir kennari rannsakaði reynslu skólastjórnenda af ofbeldi af hálfu nemenda í meistaraverkefni sínu í stjórnun menntastofnana. Niðurstöðurnar vekja upp áleitnar spurningar um ofbeldi nemenda og hvaða verkfæri stjórnendur hafa til að leysa slík mál. Til að stöðva ofbeldið þarf að hafa stífan ramma og afleiðingar við hegðun. Ábyrgð skólafólks er mikil og mikilvægt er að koma til móts við þarfir nemenda og hjálpa þeim að þroskast við öruggar aðstæður.
Soffía Ámundadóttir fjallaði um ofbeldi gegn kennurum og viðbrögð við því á öðrum fyrirlestri FRÆ 2025, þriðjudaginn 4 mars á Teams. Hægt er að horfa á erindið hér:
Um fyrirlesara
