FRÆ: Inngildandi orðræða

Anna Sigríður Þráinsdóttir, málfarsráðunautur RÚV, fjallaði um inngildandi orðræðu á sjötta og síðasta FRÆ-fundi ársins.
Fundurinn fór fram á Teams í gær, miðvikudaginn 13. nóvember. Hægt er að horfa á upptöku af fundinum hér eða í spilaranum hér fyrir neðan. Anna Sigríður fjallaði um kynhlutlaust, eða inngildandi mál í sögulegu samhengi. Þá fór hún yfir málkerfin og málvenjur út frá inngildandi máli, áður en hún lauk erindi sínu á stuttri umfjöllun um kynjaða orðræðu.
FRÆ - fundarröð Fræðslunefndar KÍ
Fundurinn er hluti af fundarröðinni FRÆ, mánaðarlegum klukkustundalöngum Teamsfundum fyrir félagsfólk á vegum fræðslunefndar KÍ. Fundaröðin hófst með fræðslufundum frá Brú lífeyrissjóði og LSR um samþykktar breytingar á reglum lífeyrissjóðanna. Í febrúar fjallaði dr. Valdís Jónsdóttir um raddheilsu. Í mars fjallaði Dísa B. Jónsdóttir hjá LSR um hverju þarf að huga að varðandi lífeyrismál við starfslok. Í apríl talaði Kristín Sigurðardóttir, slysa- og bráðalæknir, um streitu og seiglu. Sigrún Birna Björnsdóttir Kaaber, sérfræðingur KÍ í vinnuumhverfis- og jafnréttismálum, fór yfir öráreiti og áreitni á fimmta fundi fræðslunefndar, 11. september. Fulltrúar sjóða KÍ fjölluðu um sjóðamál 16. október og Anna Sigríður Þráinsdóttir, málfarsráðunautur RÚV, endaði svo fyrirlestraröðina 13. nóvember, með umfjöllun um inngildandi orðræðu. Hér er hægt að horfa á öll erindin.