FRÆ: Breytingaskeiðið og vinnustaðurinn

Halldóra Skúladóttir hóf FRÆ-fundaröð Fræðslunefndar KÍ með erindi um breytingaskeiðið og vinnustaðinn.
Hvað er þetta breytingaskeið, hvenær byrjar það og hvað er hægt að gera? Er breytingaskeiðið einkamál kvenna eða ættu allir að vita um hvað þetta snýst? Hefur breytingaskeiðið áhrif á vinnustaðinn, þarf að bregðast við? Og hvað með karlana, fara þeir á breytingaskeið?
Halldóra Skúladóttir markþjálfi fjallaði um breytingaskeiðið og vinnustaðinn á fyrsta FRÆ-fyrirlestri ársins á Teams, þriðjudaginn 4. febrúar. Fyrirlesturinn er ætlaður öllu skólafólki og öllum kynjum. Hægt er að horfa á fyrirlesturinn hér:
Hormónabreytingar karla, hormónabreytingar kvenna og mismunandi stig breytingaskeiðsins eru á meðal umfjöllunarefna ásamt áhrifum breytingaskeiðsins á vinnustöðum og leiðum til að skapa styðjandi umhverfi. Einnig fer hún yfir tíðahringinn og einkenni, greiningu og grunnupplýsingar um hormónauppbótarmeðferð.
„Breytingaskeiðið er meira en bara hitkóf og pirringur, einkennin geta reynst sumum konum erfið, haft áhrif á sambönd, atvinnu, afkomu og framtíðarheilsu. Mikilvægt er að allir skilji hver áhrifin geta verið til þess að auka skilning, stuðning og stuðla að breytingaskeiðsvænum vinnustað. Við erum öll með konur í lífinu okkar, segir Halldóra um fyrirlesturinn.“

Markmið mitt er að miðla minni reynslu, stuðla að jákvæðum breytingum á viðhorfi og auka skilning og stuðning við konur á þessu tímabili
Um fyrirlesara
Halldóra Skúladóttir er sjúkraliði, breytingaskeiðsráðgjafi og markþjálfi sem hefur á síðustu árum unnið markvisst að því að vekja athygli á breytingaskeiði kvenna, uppræta rótgróna fordóma, fræða konur og samfélagið ásamt því að stuðla að vitundarvakningu um þau áhrif sem þetta skeið getur haft á líf kvenna, bæði persónulega sem og starfsferil, afkomu og framtíðarheilsu.
Halldóra er meðlimur í NHMS – Newson Health Menopause Society, sem er samfélag heilbrigðisstarfsfólks á heimsvísu sem vinnur að því að bæta heilsu kvenna á breytingaskeiði með faglegri þróun, menntun, rannsóknum, ráðleggingum og leiðbeiningum.