Frábært faglegt starf í Múlaborg

Þriðjudaginn 18. febrúar bauð leikskólinn Múlaborg upp á Skapandi leikskólastarf. Starfsfólk leikskólans kynnti áhugaverð og skemmtileg verkefni í stöðvum sem útbúin höfðu verið víðs vegar um leikskólann. Samþætt og skapandi leikskólastarf var sýnilegt í verkefnum og umhverfi skólans. Múlaborg er með vel útbúinn íþróttasal og íþróttakennari kynnti skemmtileg og fjölbreyttar hugmyndir um hvernig hún t.d. leggur inn tölur, dýr og form á markvissan hátt í gegn hreyfingu. Skólinn er einnig með tónlistarkennara sem nýtir sér söng og tónlist til að leggja inn meðal annars læsi og hlustun. Leikskólinn vinnur einnig á markvissan hátt með útikennslu og dans.
Þriðjudaginn 18. febrúar bauð leikskólinn Múlaborg upp á Skapandi leikskólastarf. Starfsfólk leikskólans kynnti áhugaverð og skemmtileg verkefni í stöðvum sem útbúin höfðu verið víðs vegar um leikskólann.
Samþætt og skapandi leikskólastarf var sýnilegt í verkefnum og umhverfi skólans. Múlaborg er með vel útbúinn íþróttasal og íþróttakennari kynnti skemmtileg og fjölbreyttar hugmyndir um hvernig hún t.d. leggur inn tölur, dýr og form á markvissan hátt í gegn hreyfingu. Skólinn er einnig með tónlistakennara sem nýtir sér söng og tónlist til að leggja inn meðal annars læsi og hlustun. Leikskólinn vinnur einnig á markvissan hátt með útikennslu og dans. Áhugavert var að heyra um hvernig unnið er með Hugarfrelsi-kennsluaðferð, þar sem slökun, öndun, jóga, hugleiðsla og sjálfstyrking er innleidd.
Gaman er að segir frá því að þegar kom að sérkennslu var hafsjór af hugmyndum og námsgögnum til sýnis. Mikið var spjallað um inngildingu og jafnrétti fyrir öll börn.
Þetta er aðeins brot af því sem sjá mátti en það sem stendur upp úr var hve starfsfólkið var hlýtt og opið til að ræða um starf sitt og deila hugmyndum sínum. Það hefði verið gaman ef fleiri hefðu mætt á viðburðinn, en þessa dagana er umræðan um skólamál okkur afar óhagstæð.
Takk kærlega fyrir frábært síðdegi starfsfólk Múlaborgar.
