Frábær vinnusmiðja í leiklist

Fréttir|28. apríl 2022

Það var mikið lært, leikið og hlegið síðdegis í dag. Það er ekki ofsögum sagt hvílíkur snillingur hún Ása H Ragnarsdóttir leiklistarkennari er. Við vorum búin að reyna mikið að halda vinnusmiðjuna, en vegna Covid þurftum við ítrekað að fresta henni, en núna tókst það heldur betur. Ása kenndi okkur marga skemmtilega leiki til að fara í með börnunum og lagði áherslu á að við aðlöguðum þá að barnhópnum. Fylgjum eftir áhuga barnahópsins og notum aðferðir leiklistar, sögur og ævintýri með börnunum. Þannig voru leikirnir gæddir ríku ímyndunarafli og sköpunargáfa þátttakenda fékk að njóta sín.

Það var mikið lært, leikið og hlegið síðdegis í dag. Það er ekki ofsögum sagt hvílíkur snillingur hún Ása H Ragnarsdóttir leiklistarkennari er. Við vorum búin að reyna mikið að halda vinnusmiðjuna, en vegna Covid þurftum við ítrekað að fresta henni, en núna tókst það heldur betur. 

Ása kenndi okkur marga skemmtilega leiki til að fara í með börnunum og lagði áherslu á að við aðlöguðum þá að barnhópnum. Fylgjum eftir áhuga barnahópsins og notum aðferðir leiklistar, sögur og ævintýri með börnunum. Þannig voru leikirnir gæddir ríku ímyndunarafli og sköpunargáfa þátttakenda fékk að njóta sín. Ása benti okkur m.a. á bókina Leiklist í kennslu - Handbók fyrir kennara, en í henni eru margir leikir og aðferðir til þess að auka leiklistarkennslu í skólum. Bókin er aðgengileg á vef Menntamálastofnunnar og fylgja henni verkefnahefti sem einnig eru ókeypis. 

Eftir stutta kaffipásu sagði Ása okkur frá aðferðum sérfræðingskápunnar. Aðferðin gengur út á að börnin taka að sér hlutverk sem sérfræðingar. Þau taka þátt í ímyndunarleik þar sem sérfræðingarnir (börnin) nota sérfræðikunnáttu sína til að leysa verkefni. Þetta er afar áhrifarík aðferð sem þátttakendur sjá mikla möguleika í að nota í leikskólanum. Við tókum fullt af myndum sem sjá má hér.