Frábær ferð upp á Skaga að heimsækja Garðasel

Fréttir|12. maí 2025

Faghópur um skapandi leikskólastarf fór í frábæra ferð upp á Skaga til þess að kynnast starfinu í Garðaseli. Þær Ingunn Sveinsdóttir leikskólastjóri og Ragnheiður Dagný Ragnarsdóttir aðstoðarleikskólastjóri tóku vel á móti hópnum (50 konum) og sögðu frá starfi leikskólans. Þær Ingunn og Ragnheiður Dagný sögðu okkur m.a. frá afar áhugaverðu foreldranámskeiðum á vegum þróunarverkefnisins Föruneyti barna – samstarf um stuðning við uppeldi og nám. Akranes er fyrsta sveitarfélagið til að bjóða upp á slík námskeið.  Markmið námskeiðanna er að valdefla foreldra í uppeldishlutverki sínu og efla þjónustu við börn og foreldra.

Faghópur um skapandi leikskólastarf fór í frábæra ferð upp á Skaga til þess að kynnast starfinu í Garðaseli. Þær Ingunn Sveinsdóttir leikskólastjóri og Ragnheiður Dagný Ragnarsdóttir aðstoðarleikskólastjóri tóku vel á móti hópnum (50 konum) og sögðu frá starfi leikskólans. 

Leikskólinn Garðasel er einn glæsilegasti leikskóli landsins. Leikskólinn flutti í nýja byggingu sumarið 2023 og stækkaði við það talsvert. Skólinn starfar eftir hugmyndafræði Heilsustefnu Unnar Stefánsdóttur en megin markið hennar er að stuðla að heilsueflingu leikskólasamfélagsins með áherslu á hreyfingu, næringu og sköpun í leik.  

Þær Ingunn og Ragnheiður Dagný sögðu okkur m.a. frá afar áhugaverðu foreldranámskeiðum á vegum þróunarverkefnisins Föruneyti barna – samstarf um stuðning við uppeldi og nám. Akranes er fyrsta sveitarfélagið til að bjóða upp á slík námskeið.  Markmið námskeiðanna er að valdefla foreldra í uppeldishlutverki sínu og efla þjónustu við börn og foreldra. Síðar er stefnt er að því að hafa þau aðgengileg í sem flestum leik- og grunnskólum landsins. Þær eru afar ánægðar með árangurinn af námskeiðunum sem haldin hafa verið fyrir foreldra í Garðaseli. Hér er hægt að kynna sér málið betur á landsvísu. 

Stjórn Faghópsins vill þakka stjórnendum í Garðaseli fyrir sérlega góðar móttökur og fræðandi erindi 

Að loknu erindinu skoðuðum við leikskólann sem eins og áður sagði er hinn glæsilegasti. Eftir gönguferð um Garðasel lá leiðin í Stúkuhúsið sem núna er orðið að kaffihúsi á safnasvæðinu á Akranesi. Þátttakendur fengu einstaklega góða súpu og brauð áður en haldið var aftur í Kópavog. 

Að vanda tókum við mikið af myndum sem hægt er að skoða hér.