Frábær byrjun á víðtæku samtali

Fréttir|20. október 2026

Magnús Þór Jónsson formaður KÍ og Mjöll Matthíasdóttir formaður FG áttu í gær fund með sveitarstjórnarfólki og skólafólki í Borgarbyggð.

Fundurinn í Borgarbyggð var sá fyrsti í fundaröð Kennarasambandsins um framtíða skólastarfs. Fundurinn var fjölmennur en um þrjátíu manns mættu af hálfu sveitarfélagsins. Skólamálin voru rædd vítt og breitt.

„Þetta var frábær byrjun á vonandi mjög víðtæku samtali um skólamál til framtíðar. Mig langar sérstaklega að þakka Borgarbyggð fyrir að hafa riðið á vaðið og haft frumkvæði að boðinu. Umræðurnar voru góðar og það gladdi mig gríðarlega þegar Unnur Brá bæjarstjóri tók saman fundinn í lokin og sagði hann upphaf að frekara samtali hjá sveitarfélaginu og jafnvel hjá samtökum sveitarfélaga á Vesturlandi. Kjarni málsins er einmitt að útvíkka samtalið og taka sameiginlega ábyrgð á íslensku skólastarfi. Ég hlakka til næstu funda ef eins vel gengur og í Borgarbyggð,“ sagði Magnús að fundi loknum.

 

KÍ verður á ferð um landið næstu vikur


Kennarasamband Íslands gaf í byrjun október út upplýsingarit þar sem fjallað er um skólakerfið í heild, frá leikskóla til grunn- og framhaldsskóla og tónlistarskóla. Þar er jafnframt að finna ítarlegar tillögur KÍ að stefnumótun í menntamálum.

Samhliða blés KÍ til blaðamannafundar undir yfirskriftinni Blásum byr í seglin! Á fundinum voru kynntar tillögur KÍ að stefnumótun í íslensku skólakerfi til framtíðar. Fram kom að blaðamannafundurinn væri upphafið að vegferð KÍ þar sem óskað yrði eftir samtali við stjórnvöld, sveitarfélög, háskóla, fulltrúa atvinnulífs, nemendur, foreldra og aðra hagaðila.

Samfélagið hefur svarað kallinu og mun KÍ á næstu vikum fara víða og eiga samtöl við stjórnvöld, sveitarfélög, fulltrúa atvinnulífs, skólastofnanir og aðra hagaðila.

Blás­um byr í segl­in

Tillögur KÍ um stefnumótn í skólamálum til framtíðar.

Nánar