Forystufræðslu á Akureyri frestað vegna veðurs
Fréttir|18. október 2016
Fyrirhuguðum fræðslufundi Kennarasambands Íslands, sem fara átti fram á morgun (miðvikudaginn 19. október) í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri, hefur verið frestað vegna veðurs. Vinna við að finna nýjan tíma fyrir fræðsluna, sem fram fer undir nafninu „KÍ til forystu!“ er þegar hafin og verður ný tímasetning auglýst hér á síðunni og á miðlum Kennarasambandsins um leið og hún liggur fyrir.