Forystufólk KÍ skýrir málin í fjölmiðlum

Fréttir|4. febrúar 2025

Formaður KÍ og formenn aðildarfélaganna hafa verið tíðir gestir í fjölmiðlum undanfarna daga. Fjórir formenn sátu við Rauða borð Samstöðvarinnar í gærkvöld – og fóru yfir atburðarásina um liðna helgi.

Kjarabarátta kennara ein stærsta fréttin í fjölmiðlum þessa dagana, enda hófust verkföll í 21 leik- og grunnskóla í gær. Staðan er alvarlega og hefur forystusveit KÍ verið til svara um baráttumálin og viðræðurnar í útvarpi, sjónvarpi, blöðum og á netmiðlum. 

Fjórir formenn aðildarfélaga KÍ voru til viðtals í Rauða borði Samstöðvarinnar í gærkvöld. Þetta voru þau Mjöll Matthíasdóttir, formaður Félags grunnskólakennara, Guðjón Hreinn Hauksson, formaður Félags framhaldsskólakennara, Haraldur Freyr Gíslason, formaður Félags leikskólakennara, og Sigrún Grendal, formaður Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum.

Formennirnir fóru vel yfir stöðu kjaraviðræðna, einkum síðustu daga áður en ljóst varð að verkföll myndu skella á. Fróðlegur þáttur. 


Ýtið á spila-takkann á myndinni hér að ofan til að horfa á Rauða borðið. 

 

Formaður skýrir stöðuna í útvarpi op sjónvarpi

„Vonin er að við förum bara aftur á þann staðinn að við setjumst niður, klárum verkefnið og trúum á það að við náum saman til leiðréttingar sem skilar okkur árangri til lengri tíma og við þurfum ekki að eiga í fleiri kennaraverkföllum. Það er bara það sem þetta gengur út á núna,“ sagði Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, í Síðdegisútvarpinu í gær.

Þá var Magnús í viðtali við Vísi fyrr í dag þar sem hann sagði af og frá að kennurum hafi staðið til boða launahækkun upp á 20 prósent. „Tal um slíkt sé leikur að tölum sem mögulega sé ætlað að dreifa athygli fólks frá því að sveitarfélögin hafi stefnt kennurum," sagði Magnús meðal annars. 

Magnús var einnig gestur Kastljóss á fimmudagskvöldið síðasta. Horfa á viðtalið.

 

Hlekkir á nokkrar nýlegar fréttir um baráttu kennara