Forystufólk KÍ heimsækir félagsfólk í Fjarðabyggð

Fréttir|17. maí 2024

Markmiðið með heimsóknunum er að fá betri sýn skólafólks varðandi fyrirhugaðar breytingar á skólastarfi í Fjarðabyggð.

Forystufólk innan Kennarasambands Íslands mun á næstunni heimsækja félagsfólk í Fjarðabyggð, kynna sér skólastarf og ræða fyrirhugaðar aðgerðir bæjarstjórnar í málaflokknum.

Forsvarsmenn aðildarfélaga KÍ hafa undanfarna daga og vikur verið í sambandi við félagsfólk í Fjarðabyggð vegna hugmynda sem bæjarstjórn sveitarfélagsins hafa lagt fram um breytingar á skólastarfi.

Markmið með heimsókn forystu KÍ er að fá enn betri mynd af sýn skólafólks á fyrirhugaðar breytingar og um leið að vera til aðstoðar við farsælt samráð um eflingu skólastarfs í sveitarfélaginu. 

Fyrirkomulag heimsóknanna

Formenn Skólastjórafélags Íslands, Félags grunnskólakennara og Félags kennara og stjórnenda í tónlistarskólum munu ásamt formanni KÍ heimsækja grunnskóla og tónlistarskóla í Fjarðabyggð á þriðjudag og miðvikudag í næstu viku (21. og 22. maí). 

Þá munu formenn Félags leikskólakennara og Félags stjórnenda leikskóla ásamt formanni KÍ hitta félagsfólk dagana 10. og 11. júní næstkomandi. 

Nánari upplýsingar um dagskrá og fyrirkomulag heimsóknanna verða sendar félagsfólki KÍ í Fjarðabyggð næstkomandi þriðjudag.