Forysta og fagmennska í menntun
Menntavísindasvið Háskóla Íslands kynnir sérskipulagt Ed.D nám sem ætlað er þeim sem lokið hafa meistaragráðu og eru í leiðtogastörfum í leik-, grunn- og framhaldsskólum, á skólaskrifstofum eða annars staðar í menntakerfinu. Tekið er inn í námið í fyrsta sinn haustið 2016 og er gert ráð fyrir að hópurinn fylgist að í náminu og hittist reglulega á málstofum, þar sem m.a. er kafað dýpra í efnið.
Námið er skipulagt sem sex ára nám, miðað við hálft nám og skipt í fjóra módúla (sjá töflu hér að neðan). Námið er einstaklingsmiðað eins og unnt er innan þess ramma sem settur er og nemendur vinna verkefni í tengslum við starf sitt. Gerð verður námsáætlun fyrir hvern og einn nemanda í samræmi við fyrra nám.
Kynningarfundur verið haldinn þriðjudaginn 23. febrúar kl. 16.00 – 17.00 í H 101í húsnæði Menntavísindasviðs.
Umsjónarkennarar: Anna Kristín Sigurðardóttir aks@hi.is og Arna H. Jónsdóttir arnahj@hi.is
Yfirlit yfir námið og módúla (sett upp með fyrirvara um breytingar)