Forysta KÍ velur uppáhalds barnabækurnar

Fréttir|2. apríl 2020

Dagur barnabókarinnar er í dag og þá er upplagt að rifja upp uppáhalds barnabækurnar. Það gera nokkrir úr forystusveit KÍ og útkoman er stórskemmtileg.

Í tilefni af Degi barnabókarinnar valdi formaður KÍ, Ragnar Þór Pétursson, tvær af sínum uppáhalds barnabókum. Fyrir valinu urðu Múmínálfarnir eftir Tove Jansson og Nornirnar eftir Roald Dahl. Ástæða valsins var þessi:

Áður en Múmínálfarnir urðu skandinavískt tískuleirtau opnuðu þeir dyr að einstökum ævintýraheimi fyrir börn. Bækurnar eru skrifaðar af skilningi þess sem man hvernig það er að vera barn og kann að lýsa heimi þar sem pípuhattur og halasjarna geta verið álíka framandi fyrirbæri. Persónurnar eru stórkostlegar og gaman er að spegla sig í þeim eftir því sem maður fullorðnast.

Nornirnar eru síðan dæmi um hina breyttu tíma barnabókmennta. Svo virðist sem fólk hafi lengi vel ekki haft fyrir því að segja börnum sögur nema til að hræða þau. Eflaust var einhvern uppeldisfræði í því sem ég skil ekki. Það er ofsalega margt rangt við Nornirnar. Hún er á sinn hátt hryllileg og stútfull af fordómum. En hún er listilega skrifuð, skemmtilega óskammfeilin og hefur til að bera hið sígilda aðalsmerki höfundarins sem er sigur lítilmagnans á hinum ruddalega, stóra og sterka. Það eru ekki ónýt skilaboð fyrir barnssálina.

 

Anna María Gunnarsdóttir, varaformaður KÍ, valdi Línu langsokk en hún fékk bókina í jólagjöf frá foreldrum sínum jólin 1972. Lína langsokkur lifði í foreldralausum heimi og komst upp með ótrúleg uppátæki og prakkaraskap sem voru víðsfjarri stúlku sem var nýflutt í sunnlenska sveit. Boðskapurinn samt svo einfaldur, fallegur og allra tíma: Að treysta á sjálfan sig, vera hjartahlýr og óhræddur við að feta eigin braut í lífinu.

 

Þorgerður Laufey Diðriksdóttir, formaður Félags grunnskólakennara, nefndi strax Benjamín dúfu. Bókin er undurfalleg saga um vináttu, samkennd og samfélag. Ég hef notað þessa bók í samlestri í 5. bekk. Það er mjög mikilvægt er að gefa sér tíma til að ræða atburðarásina og fylgja eftir tilfinningum sem vakna við lestur bókarinnar. Útskýra hvernig aðstæður geta unnið með og á móti einstaklingum og hversu mikilvægt er að láta sér annt um aðra.

Einu sinni í kennslu var komið að leiðarlokum og bókin að klárast. Vildu nemendur ekki hætta fyrr en bókin var búin en þetta var á föstudegi og nemendur fóru heim að loknum lestri. Ég hafði ekki tíma til að ræða bókina við nemendur og gefa þeim þann tíma sem þurfti til að vinna úr upplifuninni.

Þó nokkir krakkar sátu eftir og voru hágrátandi og ég hringdi heim í þá foreldra og sagði þeim hvernig á þessu stæði og bað þau að gefa sér tíma til að ræða sögulok við börnin þegar þau kæmu heim. Einn drengur fór heim nokkuð brattur. Það var ekki fyrr en pabbi hans (læknir) hringdi og spurði mig hvort það væri búið að kalla út áfallateymi í skólanum, þar sem hann hefði frétt að Benjamín hefði dáið og bauðst til að koma strax ef við þyrfum á að halda. Í ljós kom að sonurinn hafi ekki komist nema rétt yfir þröskuldunn heima hjá sér þegar hann brotnaði niður og hágrét og gat ekki sagt annað en að Benjamín hefði dáið.

Veit ekki hvort þetta hafi verið hátindur kennsluferilsins míns eða öldudalur. Eftir að hafa útskýrt málavexti fyrir pabbanum varð hann rólegur og sagðist frekar ætla að ræða við drenginn sinn en að storma í skólann með læknatöskuna.

 

Haraldur Freyr Gíslason, formaður Félags leikskólakennara, skrifar játningu!

Mínar uppáhaldsbækur eru allar þær bækur sem ég las ekki en leigði út á skólabókasafni Öldutúnsskóla þegar ég var 11 ára. Þar lærði ég mikilvæga lexíu sem hefur fylgt mér í lífinu alla daga síðan.

Það var mikil lestrarkeppni í gangi árið sem ég var 11 ára. Ekki ósvipað og núna nema það var ekkert internet á þeim tíma. Bekkurinn minn átti að lesa eins margar bækur og hann gat og fyrir hverja lesna bók fékk hann hring á svokallaðan bókaorm sem hengdur var upp í kennslustofunni. Til að sanna að þú hefðir lesið bókina þurftir þú að skrifa stutta umsögn um hana á orminn.

Ég var frekar virkur krakki. 40 mínútna kennslustundir voru eins og heill dagur að líða í kollinum á mér. Þarna opnaðist nýr gluggi fyrir mér. Ég mátti fara á bókasafnið í miðri kennslustund til að velja mér bækur. Ég tók mér góðan tíma í hvert skipti og valdi margar bækur. Ég las enga bók en skrifaði margar umsagnir á orminn sem lengdist og lengdist. Ég fékk mikið hrós fyrir hvað ég var duglegur að lesa og leggja mitt að mörkum til að lengja orminn.

Svik mín og prettir voru fyrir augum mínum og annarra í einhverjar vikur. Samviska mín nagaði mig að innan og líðan mín á þessum tíma var óbærileg. Ég var ólýsanlega feginn þegar ormurinn var tekinn niður.

Ég ákvað þarna að svindla aldrei aftur!

 

Uppáhaldsbók Sigurðar Sigurjónssonar, formanns Félags stjórnenda leikskóla, er Gúmmí Tarsan eftir kennarann Ole Lund Kirkegaard.

Á seinnihluta síðustu aldar var það draumur margra ungra drengja og er kannski enn að verða stór og sterkur eða vera með stærri vöðva en fugladrit eins og söguhetju bókarinnar, hann Ívar Ólsen dreymdi um. Eftir að hafa hitt alvöru norn þá gat Ívar hrækt langa leið, spilað fótbolta og tekist á við stóru strákana í einn dag.

Skemmtilegar myndir og söguhetja sem fékk að upplifa drauminn þó bara væri í einn dag.