Forysta KÍ ræddi við frambjóðendur

Áherslur Kennarasambandsins í aðdraganda þingkosninga voru efni átta samræðufunda með frambjóðendum í vikunni sem leið.
Forystusveit KÍ átti fundi með fulltrúum stjórnmálaflokka, sem bjóða fram í kosningum, í síðustu viku. Fundirnir fóru fram í Stórholti, sal Kennarasambandsins við Borgartún, og var fyrirkomulagið þannig að eitt framboð kom til fundar í einu.
Umræðuefni fundanna voru fjölbreytt og gafst tækifæri til að koma áherslum Kennarasambandsins í skóla- og menntamálum að.
Málefni leik-, grunn-, framhalds- og tónlistarskólans voru kynnt fyrir frambjóðendum og hlustað eftir þeirra sjónarmiðum. Kjaramál, staða kennarastéttarinnar, skóli fyrir alla voru og samskipti ríkis og sveitarfélaga voru meðal þess sem rætt var á fundunum.
Fulltrúar Flokks fóksins, Framsóknarflokks, Miðflokks, Pírata, Samfylkingar, Sósíalista, Sjálfstæðisflokks og Viðreisnar tóku þátt í samtalinu. Myndir af þátttakendum er að finna í albúmi hér að neðan.
Kennarasambandið færir frambjóðendum þakkir fyrir samtölin.