Forsíðumyndakeppni Ferðablaðsins 2016 hafin
Fréttir|4. janúar 2016
Orlofssjóður Kennarasambands Íslands auglýsir eftir ljósmynd til að prýða forsíðu Ferðablaðsins 2016.
Þetta er í þriðja skipti sem efnt er til samkeppni um forsíðumynd Ferðablaðsins og hafa viðtökur verið góðar en í fyrra bárust á fjórða hundrað ljósmyndir í keppnina.
Verðlaun fyrir bestu forsíðumyndina eru 40 þúsund krónur.
Skilafrestur á ljósmyndum er 10. febrúar 2016 og eru áhugasamir beðnir að senda myndir á netfangið utgafa@ki.is. Upplýsingar um myndefni og myndhöfund þurfa að fylgja með.