Forsætisráðherra heimsótti Kennarasambandið

Farið var vítt og breitt um stöðuna í skólum landsins á fundi fulltrúa KÍ og forsætisráðherra í dag.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra kom í Borgartúnið í dag til fundar með fulltrúum leik-, grunn- og framhaldsskólans.
Fundurinn var að frumkvæði hennar og Magnúsar Þór Jónssonar formanns KÍ og var farið vítt og breitt um stöðuna í skólum landsins þar sem bæði forsætisráðherra fór yfir sín hugðarefni og vangaveltur í skólamálum en fékk líka upplýsingar hjá formönnum aðildarfélaga KÍ sem og frá starfandi kennurum á skólastigunum þremur um ólíka þætti skólastarfsins og aðstæður kennara og skólastjórnenda.
Full ástæða er að hrósa forsætisráðherra fyrir þann áhuga sem hún sýnir málaflokknum og sú ósk hennar að eiga milliliðalaust samtal við kennara er nákvæmlega sú leið sem Kennarasamband Íslands telur farsælast til árangurs í samskiptum stjórnmálanna við vettvanginn.
Formaður KÍ þakkaði forsætisráðherra enda í lok fundar fyrir góðan fund og lýsti kennara alltaf reiðubúna í slíkt samtal og treysti því að það skilaði sér inn á vettvang stjórnmálanna.