Formannsskipti í Félagi stjórnenda í framhaldsskólum

Ingi Bogi Bogason, aðstoðarskólameistari í Borgarholtsskóla, hefur tekið við formennsku í Félagi stjórnenda í framhaldsskólum (FS).
Ingi Bogi Bogason, aðstoðarskólameistari í Borgarholtsskóla, hefur tekið við formennsku í Félagi stjórnenda í framhaldsskólum (FS). Fráfarandi formaður er Benedikt Barðason, aðstoðarskólameistari í Verkmenntaskólanum á Akureyri.
Aðalfundur FS fór fram í húsakynnum Menntaskólans á Akureyri 8. júní síðstliðinn. Fyrir utan formannsskiptin urðu þær breytingar á stjórn FS að Ægir Karl Ægisson, áfangastjóri í Fjölbrautaskóla Suðurnesja, tekur sæti í aðalstjórn og Guðlaug Pálsdóttir, aðstoðarskólameistari í Fjölbrautaskóla Suðurnesja sest í varastjórn.
Stjórn FS
- Ingi Bogi Bogason, Borgarholtsskóla, formaður
- Snjólaug Elín Bjarnadóttir, Fjölbrautaskólanum í Garðabæ
- Þorbjörn Rúnarsson, Flensborgarskólanum
- Þorbjörg Ólöf Jónsdóttir, Verkmenntaskóla Austurlands
- Ægir Karl Ægisson, Fjölbrautaskóla Suðurnesja
Varamenn í stjórn
- Guðlaug Pálsdóttir, Fjölbrautaskóla Suðurnesja
- Sigurlaug Anna Gunnarsdóttir, Menntaskólanum á Akureyri
Kosið var í önnur embætti á aðalfundinum og eru þau þannig skipuð:
- Aðalfulltrúi í stjórn vísindasjóðs
Kolbrún Kolbeinsdóttir, TS - Varafulltrúi í stjórn vísindasjóðs
Dröfn Viðarsdóttir, FVA - Skoðunarmenn reikninga
Hallur Reynisson og Halldór Hauksson - Varaskoðunarmaður
Guðlaugur Pálmi Magnússon - Framboðsnefnd
Guðrún Guðjónsdóttir og Magnús Ingvarsson - Varamaður í framboðsnefnd
Anton Már Gylfason - Skólamálaráð
Alma Oddgeirsdóttir - Útgáfustjórn
Anna María Jónsdóttir - Fagráð
Leifur Ingi Vilhjálmsson - Varamaður í fagráði
Sólrún Guðjónsdóttir
Félag stjórnenda í framhaldsskólum var stofnað 1999 og er eitt af sjö aðildarfélögum Kennarasambands Íslands. Félagsmenn eru um hundrað og rétt til að gerast félagar eru aðstoðarskólameistarar, konrektorar, staðgenglar skólameistara/rektors, áfangastjórar og aðrir þeir sem gegna að minnsta kosti hálfri stöðu sem stjórnendur í framhaldsskólum.