Formannsskipti hjá FS

Fréttir|29. janúar 2024

Anton Már Gylfason hefur tekið við formennsku í Félagi stjórnenda í framhaldsskólum.

Guðrún Randalín Lárusdóttir sagði á dögunum af sér sem formaður Félags stjórnenda í framhaldsskólum (FS). Við formannsembætti tók Anton Már Gylfason, áfangastjóri í Borgarholtsskóla en hann hefur setið í stjórn FS síðan 2019. 

Anton Már hefur þar með tekið sæti í stjórn Kennarasambandsins og hefur setið sinn fyrsta stjórnarfund. 

Félag stjórnenda í framhaldsskólum hefur starfað frá árinu 1999 og er eitt af sjö aðildarfélögum KÍ, með um 90 félagsmenn. Rétt til að ganga í félagið hafa aðstoðarskólameistarar, konrektorar, staðgenglar skólameistara/rektors, áfangastjórar og aðrir þeir sem gegna að minnsta kosti hálfri stöðu sem stjórnendur. 

Lesa meira um FS