Formannsskipti á Grænlandi

Fréttir|15. mars 2016

Karl Frederik Danielsen hefur tekið við embætti formanns í grænlensku kennarasamtökunum, IMAK. Fráfarandi formaður er Sivso Dorph sem hefur gegnt formennsku síðustu 15 árin. Danielsen leggur áherslu að engar hindranir séu þess eðlis að ekki sé hægt að yfirstíga þær. Þá boðar hann aukið samstarf við kennarasambönd í öðrum löndum. Danielsen hefur um árabil unnið sem kennari og skólastjóri. 

Nýja formannsins bíða ærin verkefni því samkvæmt skýrslu sem kom út í fyrra er staða grunnskólans ekki mjög góð. „Sveitarfélögin í Grænlandi eru ekki talin standa sig hvað varðar hlutverk þeirra gagnvart grunnskólanum, hvorki pólitískt né hvað varðar stefnumörkun eða fræðsluhlutverk. Félagsleg vandamál og skortur á fjármagni hamla skólakerfinu gífurlega," skrifaði Hafdís Dögg Guðmundsdóttir, sérfræðingur í vinnuumhverfis- og jafnréttismálum hjá KÍ, í grein sem birtist í Skólavörðunni á liðnu hausti.

Í grein Hafdísar sagði jafnframt að grænlenska skólakerfið væri eitt það dýrasta í heimi, sökum landfræðilegra þátta, og að sveitarfélög hefðu neyðst til að skera niður kennslustundir og skerða þjónustu við nemendur með sérþarfir. 

Félagar í IMAK eru 1.300 talsins.