Formannskosningar hjá FF og FG fara fram í næstu viku

Félagsmenn tveggja aðildarfélaga KÍ velja sér formann í næstu viku. Þetta eru Félag grunnskólakennara og Félag framhaldsskólakennara.
Formannskjör fer fram hjá tveimur aðildarfélögum KÍ, Félagi grunnskólakennara (FG) og Félagi framhaldsskólakennara (FF), í næstu viku.
Þrjú bjóða sig fram til formennsku í Félagi grunnskólakennara; Mjöll Matthíasdóttir, kennari við Þingeyjarskóla, Pétur Vilberg Georgsson, kennari við Brekkubæjarskóla og Þorgerður Laufey Diðriksdóttir, formaður FG. Kosið verður í önnur embætti og trúnaðarstörf í maí.
Tveir bjóða sig fram til formanns í Félagi framhaldsskólakennara; Guðjón Hreinn Hauksson, formaður FF, og Kjartan Þór Ragnarsson, kennari í Menntaskólanum í Reykjavík. Þá verður jafnframt kosið í stjórn Félags framhaldsskólakennara og eru þrettán í framboði.
Fyrirkomulag hjá Félagi grunnskólakennara
- Framboðsfundur með frambjóðendum fer fram þriðjudagskvöldið 26. apríl. Fundurinn fer fram í Stórholti, sal Kennarasambandsins við Borgartún, og hefst klukkan 20. Streymt verður frá fundinum og gefst fólki kostur á að senda spurningar til frambjóðenda í gegnum netfangið utgafa@ki.is.
- Atkvæðagreiðsla meðal félagsmanna FG hefst klukkan 14 mánudaginn 2. maí og lýkur klukkan 14 laugardaginn 7. maí. Atkvæðagreiðslan verður rafræn og fer fram á Mínum síðum á vef KÍ.
- Hlekkur á kynningu frambjóðenda
Fyrirkomulag hjá Félagi framhaldsskólakennara
- Framboðsfundur með frambjóðendum til formanns FF fer fram miðvikudagskvöldið 27. apríl. Fundurinn fer fram í Stórholti, sal Kennarasambandsins við Borgartún, og hefst klukkan 20. Streymt verður frá fundinum og gefst fólki kostur á að senda spurningar til frambjóðenda í gegnum netfangið utgafa@ki.is. Auk formannskandidatanna tveggja fá frambjóðendur til stjórnar félagsins, sem eru þrettán talsins, tækifæri til að kynna sig og sínar áherslur.
- Atkvæðagreiðsla meðal félagsmanna í FF hefst klukkan 12 mánudaginn 2. maí og lýkur klukkan 14 föstudaginn 6. maí. Atkvæðagreiðslan verður rafræn og fer fram á Mínum síðum á vef KÍ.
- Uppfært 6. maí: Formannskjörið hefur verið framlengt til klukkan 14 mánudaginn 9. maí.
Staðan í öðrum félögum
Fyrir liggur að Haraldur Freyr Gíslason mun gegna formennsku í Félagi leikskólakennara á kjörtímabilinu 2022-2026. Sama á við um Sigurð Sigurjónsson, formann Félags stjórnenda leikskóla, og Þorstein Sæberg, formann Skólastjórafélags Íslands. Hjá Félagi kennara og stjórnenda í tónlistarskólum fer aðalfundur fram í haust. Ægir Karl Ægisson er formaður Félags stjórnenda í framhaldsskólum, þar verður efnt til aðalfundar í júní.
Hlekkir á upptökur frá framboðsfundum