Formanns- og stjórnarkjör hafið hjá FF

Félagsmenn Félags framhaldsskólakennara kjósa formann og stjórn félagsins. Atkvæðagreiðsla stendur frá 2. til 6. maí.
Kosningar eru hafnar hjá Félagi framhaldsskólakennara. Atkvæðagreiðslan hófst klukkan tólf í dag, mánudaginn 2. maí.
Kosið er til formanns og stjórnar FF. Atkvæðagreiðslunni lýkur klukkan 14:00 mánudaginn 9. maí. (uppfært 6. maí).
Tveir eru í framboði til formanns FF
- Guðjón Hreinn Hauksson, formaður Félags framhaldsskólakennara
- Kjartan Þór Ragnarsson, kennari við Menntaskólann í Reykjavík
- Skoða kynningarefni formannskandidata
Þrettán bjóða sig fram til stjórnar
- Baldvin Björgvinsson, Fjölbrautaskólanum í Breiðholti
- Guðmundur Arnar Guðmundsson, Verkmenntaskóla Austurlands
- Guðmundur Björgvin Gylfason, Fjölbrautaskóla Suðurlands
- Gunnar Hólmsteinn Ársælsson, Fjölbrautaskólanum í Garðabæ
- Heimir Björnsson, Flensborgaskólanum í Hafnarfirði
- Helga Jóhanna Baldursdóttir, Tækniskólanum
- Jóhanna Björk Guðjónsdóttir, Kvennaskólanum í Reykjavík
- Óli Njáll Ingólfsson, Verzlunarskóla Íslands
- Sandra Hlín Guðmundsdóttir, Borgarholtsskóla
- Sigrún Lilja Guðbjörnsdóttir, Menntaskólanum við Sund
- Simon Cramer Larsen, Fjölbrautaskóla Suðurnesja
- Sólveig Ebba Ólafsdóttir, Menntaskólanum í Kópavogi
- Steindóra Kristín Þorleifsdóttir, Framhaldsskólanum í Mosfellsbæ
- Skoða kynningarefni frambjóðenda til stjórnar
Um atkvæðagreiðsluna
- Hefst klukkan 12:00 2. maí
- Lýkur klukkan 14:00 6. maí *uppfært 6. maí: Frestur til að kjósa framlengdur til klukkan 14 mánudaginn 9. maí.
Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á www.ki.is Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með Íslykli eða Rafrænum skilríkjum.
Þegar komið er inn á Mínar síður sjást tvennar kosningar.
- Kosning til formanns FF 2022 – Merktu við þann frambjóðanda sem þú vilt kjósa sem formann FF.
- Kosning til stjórnar FF 2022 - Merktu við þá fjóra frambjóðendur sem þú vilt kjósa í stjórn FF.
Smelltu að lokum á flipann Kjósa og þá birtist eftirfarandi texti til að staðfesta að atkvæði hafi verið greitt: Atkvæði þitt hefur verið móttekið.
Ef þú vilt fresta því að greiða atkvæði skaltu smella á: Hætta við kosningu.
Hægt er að kjósa aftur, með því ógildist fyrri kosning. Hver kennitala skilar einungis síðasta greidda atkvæði.
Athygli skal vakin á því að samkvæmt starfsreglum kjörstjórnar er einungis hægt að kjósa 4 í stjórn félagsins, hvorki fleiri né færri.
Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna eru veittar á skrifstofu KÍ en starfsmaður kjörstjórnar er Fjóla Ósk Gunnarsdóttir, netfang: fjola@ki.is, sími: 595 1111.