Formaður KÍ undrast útspil ráðherra

Minnisblað Ingu Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, felur í sér áform um miklar breytingar á skólakerfinu. Formaður KÍ segir útspilið undarlegt og á skjön við það sem hefur verið rætt við borð ríkissáttasemjara undanfarið ár – en þar hafa fulltrúar KÍ, sveitarfélaga og ríkis rætt um virðismat á kennarastarfinu og hvernig vinnuumhverfi skili börnum bestum árangri.
Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, kveðst undrandi yfir minnisblaði sem Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, lagði fyrir ríkisstjórn í vikunni. Þetta kom fram í viðtali við Magnús í sjónvarpsfréttum RÚV í kvöld.
Í minnisblaðinu boðar ráðherra umtalsverðar breytingar á skólakerfinu, svo sem fjölgun kennsludaga og kennslustunda í grunnskólum – með það að markmiði að bæta námsárangur íslenskra barna.
Framlagning minnisblaðsins nú er að mati Magnúsar sérkennileg í ljósi þess samtals sem hefur verið í gangi milli KÍ, sveitarfélaga og ríkisins í kjölfar kjarasamninga sem voru gerðir snemma á síðasta ári. Þarna vísar Magnús í svokallaða virðismatsvegferð sem felur í sér skoðun og mat á virði kennarastarfsins en líka á því hvernig bæta megi vinnuumhverfi börnum til góðs.
„Minnisblað ráðherra leiðir fram atriði sem við áttum okkur ekki á hverju á að skila. Þarna er talað með allt öðrum hætti en við höfum upplifað í vinnu um virðismat kennarastarfsins undir stjórn ríkissáttasemjara,“ sagði Magnús.
Útgjöld til skólamála eru einnig reifuð í minnisblaði ráðherra og þar segir að þau séu ein þau hæstu innan OECD-landanna.
Magnús svaraði því til í viðtalinu að útgjöld hér séu í meðallagi ef horft er til hinna Norðurlandanna.
„Það helgast meðal annars af því að á Norðurlöndunum hafa menn ákveðið að velferðarkerfið sé stórt og mikið kerfi og að skólarnir séu hluti af því. Við megum heldur ekki gleyma því að við hér á landi höfum ákveðna sérstöðu sem samfélagið hefur stutt við.
Við höfum haldið í þá sérstöðu að kenna verk- og listgreinar frá yngsta stigi og við höfum sundkennslu í gegnum alla skólagönguna. Við erum með viðmiðunarstundaskrá sem miðar að því að komið sé til móts við þessa hluti,“ sagði Magnús.
Hann benti líka á að samfélagsleg sátt sé um að skólarnir séu fyrir alla – en það hafi í för með sér að hver og einn skóli þurfi að vera tilbúinn að taka við ólíkum hópum með ólíkar þarfir. Þá hafi íslenskt samfélag valið að vera með ólíkar stærðir í skólahaldi sem hefur skapað óhagræði, sem sem með fleiri fámennum skólum en tíðkast víðast erlendis.
Magnús sagði jafnframt að það væri leitt að horfa til þess að stjórnvöld ætli að stíga með þessum hætti inn í ferli virðismatsvegerðarinnar. Sama eigi við áform ríkisstjórnarinnar um afnám áminningarskyldu án samráðs við samtök launafólks.
„Kennarasambandið hefur kallað eftir samfélagslegu samtali um hvernig við viljum að skólinn sé og að okkar mati er enginn sterkari liðsmaður en kennararnir í þeirri umræðu, sagði Magnús.