Formaður KÍ lýsir yfir vonbrigðum með afgreiðslu Alþingis

Fréttir|22. desember 2016

Alþingi hefur samþykkt lífeyrisfrumvarpið.

„Þetta eru augljóslega gríðarleg vonbrigði“ segir Þórður Á. Hjaltested formaður Kennarasambandsins um þá niðurstöðu að Alþingi samþykkti nú fyrir stundu frumvarp um breytingar á lífeyrisréttindum opinberra starfsmanna.

Þórður segir það hafa komið mjög á óvart að þingmenn hafi kosið að hunsa vilja allra landssamtaka og stéttarfélaga opinberra starfsmanna. „Ég vísa ábyrgð á málinu á starfandi fjármálaráðherra og þeirra þingmanna sem samþykktu frumvarpið í fullkominni óþökk opinberra starfamanna. Stjórn og stjórnendur Kennarasambandsins munu á næstu dögum fara yfir stöðuna og meta næstu skref. Þó er ljóst að KÍ mun leita leiða til að fara með málið fyrir dómstóla til að verja réttindi félagsmanna sinna“.