Foreldrasamstarf í leikskóla

Fréttir|10. nóvember 2015

Ísland er í dag fjölbreyttara samfélag en áður enda velja sífellt fleiri einstaklingar af erlendum uppruna að setjast að og stunda nám og vinnu hérlendis. Börnum af erlendum uppruna hefur því fjölgað í íslenskum skólum og í desember 2012 voru 2.062 leikskólabörn (10,5%) með erlent tungumál sem sitt fyrsta mál. Algengasta erlenda móðurmálið er pólska, en 783 leikskólabörn hafa pólsku að móðurmáli (Hagstofa Íslands, 2013). Nýjustu upplýsingar frá Hagstofunni eru frá því í desember 2014 en þá voru 2.197 börn í leikskólum með annað fyrsta tungumál en íslensku. Algengasta erlenda móðurmálið var þá enn pólska, sem var fyrsta mál 922 barna (Hagstofa Íslands, 2015).

Iwona Maria Samson leikskólakennari skrifar

Í rannsókn sem undirrituð gerði vorið 2014 voru viðhorf og væntingar þriggja pólskra mæðra til íslenska leikskóla skoðaðar, en einnig upplifun leikskólakennara af því að starfa með börnum af erlendum uppruna í fjölmenningarlegum leikskóla. Það er mikilvægt að huga að samstarfi foreldra af erlendum uppruna og leikskólakennara, til þess að varpa ljósi á hvaða kostir eru fyrir hendi og hvaða hindranir eru í veginum fyrir góðu foreldrasamstarfi.

Börn af erlendum uppruna sem hefja leikskólagöngu hafa mismunandi bakgrunn. Mikilvægt er að barnið geti gert sig skiljanlegt í þessu nýja umhverfi, en einnig þarf að hafa í huga að foreldrar hafa mismunandi skoðanir á því hvað hentar börnum þeirra og hvaða þjónustu þau þurfa. Mikilvægt er að sinna vel börnum af erlendum uppruna, því ekki er auðvelt fyrir þau að koma inn í íslenskan leikskóla þar sem allt önnur menning ríkir en þau eru vön. Það er margt sem þessi börn þurfa að laga sig að og ber að taka tillit til þess. Rannsóknir um samstarf heimilis og leikskóla sýna að foreldrar hafa mismunandi skoðanir á því hvað henti barni þeirra og hvaða þjónustu það þurfi. Kennarar nefna helst daglegt spjall, foreldraviðtöl, almennar upplýsingar um starfið og kynningar og foreldrafundi sem leiðir í samstarfi við foreldra. Það sem helst var rætt við foreldra var líðan barns þeirra, almennt um dagskrá og starf leikskólans, nám og þroska barnsins, aðbúnað og hegðun (Bryndís Garðarsdóttir og Jóhanna Einarsdóttir, 2007). Oft vita foreldrar ekki hvaða þjónusta er í boði og er það hlutverk leikskólakennara að sýna þeim hvaða réttindi þeir hafa í kerfinu. Því er það hlutverk leikskólans að leita eftir upplýsingum frá foreldrum og hlusta á skoðanir þeirra.

Rannsóknaraðferð
Ég valdi að athuga væntingar pólskra mæðra af því að ég er líka pólsk og mig langaði til að fá að vita meira um leikskólagöngu pólskra barna og móttöku þeirra í skólunum. Einnig vildi ég kynnast viðhorfum leikskólakennara til leikskólamenntunar barna af erlendum uppruna. Í rannsókninni var leitast við að svara spurningunum „Hverjar eru væntingar þriggja pólskra mæðra til leikskólagöngu barna sinna“ og „Hvernig upplifa þrír leikskólakennarar hlutverk sitt og aðferðir við að vinna í fjölmenningarlegum leikskóla og með börn af erlendum uppruna“. Rannsóknin fór fram vorið 2014. Í rannsókninni voru notaðar eigindlegar aðferðir og við öflun gagna voru notuð hálfopin viðtöl, þar sem notaður var sami viðtalsrammi fyrir sama hóp þátttakenda og síðan spurt ítarlega um einstök atriði. Haft var samband við foreldrana símleiðis, tilgangur viðtalanna útskýrður og hvers vegna ég vildi heyra sjónarmið þeirra. Einnig var sagt frá því að lengd viðtalsins yrði um það bil hálf til ein klukkustund og að viðtalið yrði hljóðritað. Við val á leikskólakennurunum var þess gætt að þeir hefðu átt í samskiptum við erlendar fjölskyldur í leikskólunum, en reynsla þeirra var mismikil. Haft var samband við kennarana símleiðis og sömuleiðis útskýrður fyrir þeim tilgangurinn með viðtölunum, sem og að mig langaði að heyra frá þeim um samstarf heimila erlendra foreldra og viðkomandi leikskóla.

Viðtöl við foreldra
Helstu niðurstöður sýna að væntingar foreldra barna af erlendum uppruna varðandi leikskólagöngu barna þeirra voru að leikskólann yrði mikilvægur fyrir börnin til að aðlagast íslensku samfélagi og kynnast íslenskri menningu. Mæðurnar þrjár sem rætt var við töldu allar að íslenskunám hefði vegið þungt þegar tekin var ákvörðun um að setja börn í leikskóla, en tvær sögðu að þær hefðu einnig þurft öruggan stað fyrir börnin meðan þær stunduðu vinnu.
„...læra samskipti við börn; hafa það betra; í leikskólanum lærir þú bara allt - tala við börnin, skrifa, mála, en þú veist, að þegar maður er að vinna, þá er lítill tími sem foreldri hefur; ég get ekki eytt eins miklum tíma og í leikskólanum; og tungumálið, það skiptir mestu máli, því hann fer í skóla“. Í öllum viðtölunum kom líka fram, að mæðurnar vildu hafa gott samstarf milli leikskóla og heimila, fá allar upplýsingar um hvað börnin voru að gera í hópastarfi, hvernig barnið borðaði og hvort það hafi sofið vel. Þær sögðu að mjög misjafnt hefði verið hversu duglegir leikskólakennararnir voru að skila öllum upplýsingum um barnið til foreldra, en þær voru líka sammála um að foreldrar þyrftu stundum að miðla meiri upplýsingum til kennaranna. En allar voru sammála um að samstarf hefði breyst töluvert til hins betra.
„Kennarinn þarf að segja frá deginum, til dæmis ef barnið meiðist eða svoleiðis. Mig langar að fá upplýsingar um hvað þau eru að gera í hópastarfinu, eða svona daglegar upplýsingar hvað þau eru að gera. Ég man einu sinni að Anna var með hausverk allt kvöldið, svo ég spurði næsta dag í leikskólanum, hvort Anna hefði meitt sig eða einhvað. Þá kom í ljós að hún var að róla daginn áður og datt úr rólunni.“
Allar mæðurnar voru sammála um að þegar þær voru öruggar og treystu leikskólanum, þá voru börnin einnig örugg og ánægð. Þær sögðu það einnig vera eitt af undirstöðuatriðunum, til að starfið í leikskólanum gengi vel, að vera í góðu samstarfi við kennarana. Leikskólakennarar þyrftu að vera vandaðir í framkomu og sýna að þeir væru tilbúnir að veita allar upplýsingar um barnið og að þeim væri treystandi.
Allir foreldrarnir hlökkuðu til að barnið þeirra fengi tækifæri til að leika við börn á sama aldri, læra að fara eftir reglum og læra íslensku.
„Ég ætla að segja aftur, að ég myndi ráðleggja öllum að senda börn í leikskóla, sérstaklega, já, fólki frá útlöndum, því barnið lærir íslensku og leikur sér við önnur börn og lærir það líka, áður en það fer í grunnskólann, hvernig er að vera í barnahópi og hvaða reglur og allt gilda í íslensku samfélagi“

Viðtöl við leikskólakennara
Í viðtölum við leikskólakennarana kom fram að þeir voru allir tilbúnir að taka á móti börnum af erlendum uppruna, þó engin áætlun væri til um það í flestum leikskólum Ísafjarðabæjar, þar sem rannsóknin fór fram. Þeir töldu, að mikilvægt væri að ná til alla foreldra barna af erlendum uppruna og til að auðvelda það þá þyrfti að hafa kennara af erlendum uppruna í hverjum leikskóla. Það væri frábært að hafa fjölbreyttan starfsmannahóp í leikskólum, því samfélagið á Íslandi væri að verða fjölmenningarlegt. Leikskólakennararnir í tveimum leikskólum sögðu að yfirleitt væri enginn sérstakur undirbúningur áður en barn af erlendum uppruna byrjaði í leikskólanum. Þó væri pantaður túlkur fyrir fyrsta viðtalið, en pólskur leikskólakennari væri einnig til staðar ef foreldrar samþykktu það.
„Leikskólar sem eru með starfsmenn af erlendum uppruna sem tala á öðrum tungumálum eru ríkir leikskólar. Það gerir starfið okkar fjölbreyttara. Samfélagið er að verða fjölmenningarlegt og gott að hafa það líka í leikskólanum“.
Leikskólakennurunum fannst að undirstaða góðra samskipta væri fólgin í mikilvægi þess að upplýsingar um barnið kæmust til skila, bæði frá foreldrum og leikskólanum. Og til þess að starfið i leikskólanum gengi vel þyrftu kennarar að vera í nánu samstarfi við foreldrana.
En ef eitthvað er að þá reyni ég að kalla á kennara sem talar sama tungumál, til að útskýra fyrir foreldrunum og ég reyni líka að spyrja þau ef eitthvað er að gerast í leikskólanum. Ef ég sé að þau skilja ekki, þá reyni ég að fá upplýsingarnar á þeirra tungumáli, fá pólska kennarar til að skrifa á pólsku, t.d vegna tilkynningar um foreldraviðtöl. Við verðum að finna leið til að koma upplýsingum til þeirra. Ég hef verið svo heppin að hér hefur verið pólskur kennari og ég nota hann mikið.“ Það kom líka fram að starfsfólk þyrfti að vera vakandi yfir því hvernig samstarfið væri á milli foreldra barna af erlendum uppruna og leikskólans, sem og hvernig tekið væri á móti börnum af erlendum uppruna.

„Það eru ekki allar þjóðir eins og við megum ekki dæma strax heldur upplýsa. Það þarf að hafa það skriflegt hvernig við eigum að taka á móti börnum af erlendum uppruna og hvernig við styðjum foreldra þeirra og höfum upplýsingar á þeirra tungumáli. Kynna foreldrum rétt þeirra, til dæmis réttinn til að fá túlk.“

Lokaorð
Rannsókn mín og viðtöl benda til þess (og rannsóknir annarra styðja það) að foreldrar barna af erlendum uppruna telja að leikskólinn sé mikilvægur fyrir börn til að aðlagast íslensku samfélagi og kynnast íslenskri menningu. Ég tel að rannsóknin sýni ágætlega hvaða væntingar mæður pólsku barnanna hafa og hvaða viðhorf leikskólakennarar hafa til menntunar barna af erlendum uppruna og að báðir aðilar séu sammála um mikilvægi góðs samstarfs á milli þeirra. Að lokum vil ég segja að vitneskjan sem ég hef aflað mér við vinnu þessarar rannsóknar getur nýst mér vel í starfi mínu sem leikskólakennari og deildarstjóri, því á herðum deildarstjórans hvílir góð aðlögun barnanna ásamt ábyrgð á góðu foreldrasamstarfi.

Heimildaskrá
Bryndís Garðarsdóttir og Jóhanna Einarsdóttir. (2007). Á mótum tveggja heima. Samstarf heimila og leikskóla. Í Gunnar Þór Jóhannesson (ritstjóri), Rannsóknir í félagsvísindum VIII (bls. 679–699). Reykjavík: Félagsvísindastofnun Háskóla Íslands.

Hagstofa Íslands. Börn i leikskólum með erlent móðurmál. Sótt 8. október 2015 af vef Hagstofu Íslands.

Hagstofa Íslands. Mannfjöldi eftir sveitarfélögum, kyni, ríkisfangi og ársfjórðungum. Sótt 15. nóvember 2013 af vef Hagstofu Íslands.