Fögnum fjölbreytileikanum í skólanum

Árlegt Skólamálaþing skólamálaráðs KÍ fer fram á kennaradegnum, 5. október.
Uppfært 5.10. 2022 klukkan 15:26. Þingi frestað vegna rafmagnsleysis.
Skólamálaráð efnir til árlegs Skólamálaþings á Alþjóðadegi kennara 5. október. Yfirskrift þingsins er Fögnum fjölbreytileikanum í skólanum. Hinsegin málefni verða þungamiðja þingsins og koma fyrirlesarar úr mörgum áttum.
Skólamálaþing verður haldið á Hótel Reykjavík Natura en því verður líka streymt á netinu – þannig að allir félagsmenn KÍ fái notið. Það er ánægjuefni að geta efnt til staðfundar en síðustu tvö árin hefur Skólamálaþing verið ögn minna í sniðum og einvörðungu á netinu. Ástæðuna þekkja væntanlega allir.
Aðalfyrirlesari verður Íris Ellenberger, dósent á Menntavísindasviði HÍ. Gestafyrirlesarar verða Svandís Anna Sigurðardóttir, sérfræðingur á mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu Reykjavíkurborgar, og Tótla Sæmundsdóttir, fræðslustýra Samtakanna '78.
Auk þess munu fulltrúar skólastiganna flytja ávörp. Jónína Hauksdóttir, varaformaður KÍ og formaður Skólamálaráðs, setur þingið.

Hinsegin börn eru börn nefnist erindi Nóams Stefánssonar sem verður fulltrúi framhaldsskólanema á þinginu.
Dagskrá Skólamálaþings KÍ 2022
15:00
Setning
Jónína Hauksdóttir, varaformaður KÍ
15:05
Ávarp
Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra
15:15
Hinseginvænir skólar: Ekki bara fornöfn og regnbogafánar
Íris Elleneberg, dósent á Menntavísindasviði HÍ
15:35
Regnbogavottun: Öflugt tæki fyrir hinseginvænna skólastarf
Svandís Anna Sigurðardóttir, sérfræðingur á mannréttinda- og lýðræðisskrifstofu Reykjavíkurborgar
15:45
Fyrirmyndir fjölbreytileikans hjá fyrsta skólastiginu
Sólrún Óskarsdóttir, skólastjóri í Brákarborg
15:55
Mikilvægi hinsegin fyrirmynda í skólastarfi
Hafþór Óskarsson, kennari í Langholtsskóla
16:05
Hinsegin börn eru börn
Nóam Stefánsson framhaldsskólanemi
16:15
Hinseginleikinn í tónlistarskólanum, er hann til?
Harpa Jóhannsdóttir, tónlistarkennari við Tónlistarskóla Reykjanesbæjar
Mara Birna Jóhannsdóttir, tónlistarnemi í Listaháskóla Íslands
16:25
Líðan hinsegin barna: Hvað getum við gert? Stuðningur við hinsegin börn og ungmenni.
Tótla I. Sæmundsdóttir, fræðslustýra Samtakanna ´78
16:35
Þingslit
Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ