Fögnum fjölbreytileikanum

„Það er fátt mikilvægara en að fagna fjölbreytileikanum í skólunum. Ég hvet félagsmenn Kennarasambandsins til að taka þátt í baráttunni, ekki bara þessa vikuna, heldur alltaf.“
Í tilefni Hinsegin daga óska ég öllum kennurum, nemendum og landsmönnum gleðilegrar hátíðar, sem nær hápunkti sínum með gleðigöngum um land allt, laugardaginn 6. ágúst.
Kennarasamband Íslands styður við baráttu hinsegin fólks. Öll eiga jafnan rétt á að njóta mannréttinda óháð kyni, kynhneigð, búsetu, þjóðerni, líkamsgerð, trú, tungumáli og öðru. Öll eiga jafnan rétt á að vera þau sjálf.
Ég hvet félagsmenn Kennarasambandsins til að taka þátt í baráttunni, ekki bara þessa vikuna, heldur alltaf. Ég hvet alla til að styðja við bakið á samkennurum og nemendum og stuðla að fræðslu og umræðu um hinsegin málefni og öruggu námsumhverfi fyrir alla.
Málefni hinsegin fólks innan skólakerfisins verða í brennidepli á Skólamálaþingi KÍ, sem fer fram 5. október, á Alþjóðadegi kennara. Það er fátt mikilvægara en að fagna fjölbreytileikanum í skólunum. Von okkar er að félagsmenn fjölmenni á þingið og að það verði stéttinni og skólasamfélaginu hvatning til þess að gera betur í þessum efnum því við erum sífellt að læra og viljum gera betur í dag en í gær.
Til hamingju með okkur,
Jónína Hauksdóttir varaformaður KÍ.