Flutningar í Borgartún hafnir
Fréttir|27. janúar 2020

Kennarasambandið er þessa dagana að flytja skrifstofuna í nýtt húsnæði við Borgartún 30.
Kennarasambandið er þessa dagana að flytja skrifstofuna í nýtt húsnæði við Borgartún 30. Ljóst er að næstu daga verður mikið verk að tæma Kennarahúsið og koma öllu í rétt horf á nýjum stað. Af þeim sökum verður röskun á starfsemi sambandsins og hefur verið ákveðið að hafa opið frá 9 til 12 þessa viku.
Félagsmönnum er því bent á að hafa samband fyrripart dags og eða senda erindi í tölvupósti. Reynt verður að afgreiða erindi félagsmanna eins og fljótt og auðið er.
Félagsmenn eru beðnir afsökunar á þessari röskun en skrifstofan verður opin með hefðbundnum hætti, í Borgartúni 30, 6. hæð, næstkomandi mánudag.