Flöskuskeyti Vogaskóla

Fréttir|15. júlí 2019

Það var veðurbarinn hópur sem hætti sér út í heita lækinn í Reykjadal ofan Hveragerðis einn haustdag síðastliðið ár.

Það var veðurbarinn hópur sem hætti sér út í heita lækinn í Reykjadal ofan Hveragerðis einn haustdag síðastliðið ár. Fljótlega færðist sælubros yfir hvert andlit og vindur, kuldi og skúraveður gleymdust um stund. Einhver hafði á orði að Ísland væri engu líkt. Veðrið skipti sífellt um ham, gæfi lítil grið, lífsháski virtist á næsta leyti, en svo dytti skyndilega á dúnalogn og til að kóróna undrið mætti láta fara vel um sig í læk uppi í óbyggðum, gleyma stað og stund – og finna unaðinn hríslast um sig.

Við vorum saman komin, lítill kennarahópur frá fjórum þjóðlöndum, til að ræða samstarfsverkefni næstu missera. Öllum fannst viðeigandi að þessi fyrsti fundur ætti sér stað á Íslandi því við vorum að leggja drög að vinnu þar sem vatn var í brennidepli. „Hér er bókstaflega vatn alls staðar – stundum til óþurftar, stundum til gleði,“ varð einum að orði þegar við gengum til baka eftir baðferðina. Enn ein skúrin var skollin á en gæðastundin í læknum yljaði okkur. Hugurinn fór á flug, við köstuðum fram hugmyndum og leyfðum okkur jafnvel að gerast skáldleg. Verkefnið fékk heitið „Flöskuskeytið“ með vísun til þess að nemendur myndu senda hver öðrum skilaboð þar sem fjallað væri um mikilvægi vatns í hverju landi fyrir sig.

Áherslan á sjálfstæð og skapandi vinnubrögð

Undirritaður er kennari við Vogaskóla en skólahald verður þar alþjóðlegra með hverju árinu sem líður. Sífellt fleiri nemendur og starfsmenn eru af erlendu bergi brotnir og alþjóðasamstarf skólans hefur færst mjög í vöxt. Evrópskt samstarf er snar þáttur í starfi skólans og verður hér sagt frá „Erasmus+“ verkefni sem nýlega var hleypt af stokkunum en það er kostað af Evrópusambandinu. Auk Íslands eiga Litháen, Portúgal og Tékkland hlut að máli.

Verkefnið byggir á nemendavinnu en þátttakendur velja áfangann í frjálsu vali. Nemendur vinna að mestu saman í litlum hópum auk þess sem þeir eru í rafrænu sambandi við félaga sína erlendis. Áhersla er lögð á sjálfstæð skapandi vinnubrögð þar sem nemendur sýna frumkvæði og sveigjanleika í samstarfi við aðra. Snar þáttur verkefnisins eru skólaheimsóknir þar sem nemendur kynna afurðir sínar í samstarfslöndunum. Móttökuskólinn skipuleggur einnig verkefnavinnu þá viku sem skólaheimsóknirnar standa yfir. Lögð er áhersla á að nemendur kynnist vel erlendum félögum sínum. Ekki er nóg með að þeir séu í daglegu samstarfi heldur gista þeir einnig á heimilum gestgjafanna. Enn fremur fá ferðalangarnir tækifæri til að skoða sig um og kynnast menningu hvers lands fyrir sig.

Auk nemendaferða eru kennaraferðir til hvers samstarfslands þar sem verkefnið er þróað og metið. Ekki er minna um vert að með þeim ferðum gefst frekara tækifæri til að skoða aðstæður í hverjum skóla fyrir sig, styrkja tengslin og kynnast betur landi og þjóð. Eitt helsta markmið Evrópusambandsins er að efla skilning á milli þjóða og má líta á Erasmusáætlunina sem mikilvægan lið í þeirri viðleitni. Kennurunum sem hingað komu í haust fannst áhugavert að kynna sér tækjakost skólans og sjá hversu mikið skapandi starf ætti sér stað innan hans. Vöktu sérgreinastofurnar ekki hvað síst athygli en íslenskir skólar virðast standa vel að vígi í þeim efnum.

Krakkarnir ófeimnir við hina erlendu gesti

Sú hugmyndafræði sem Vogaskóli er að innleiða um þessar mundir til að efla áhuga og ábyrgðarkennd nemenda (uppeldi til ábyrgðar) þótti einnig eftirtektarverð sem og frjálslegt fas þeirra og tungumálakunnátta. Voru krakkarnir ófeimnir við að ræða við hina erlendu gesti sem höfðu á orði að það væri ekki á færi unglinga í þeirra löndum að tjá sig jafn lipurlega á ensku. Dagarnir voru vel nýttir þá viku sem gestirnir dvöldu hér. Auk vinnufundanna var farið í skoðunarferðir og heimsóknir. Við fórum á söfn, skoðuðum Elliðaárvirkjun, brugðum okkur í sund, lögðumst í útivist og fórum hinn skyldubundna gullna hring. Viðfangsefnið „vatn“ var skammt undan hvert sem farið var enda var það sem rauður þráður í samræðum okkar – í gamni og alvöru. Má í því sambandi nefna friðsæld Þingvallavatns, ólgandi hverina við Geysi, kyngimagnaðan kraft Gullfoss og styrkjandi veigar við Laugarvatn. Allan tímann skiptust á skin og skúrir en það var ánægður hópur sem yfirgaf landið þó veðurbarinn væri.

Höfundur: Leifur Reynisson, kennari við Vogaskóla. Greinin birtist í Skólavörðunni, 1. tbl. 2019.