Flokka, fræða og fylgja grænum skrefum

Fréttir|3. desember 2020

Kennarasambandið hefur tekið ákvörðun um að fylgja Grænum skrefum.

Kennarasamband Íslands hefur sett sér umhverfisstefnu og vill vera til fyrirmyndar í umhverfismálum. Þetta var tilkynnt á degi íslenskrar náttúru þann 16. september en Kennarasambandið mun gegna forystuhlutverki í fræðslu um umhverfismál til aðildarfélaga sinna.

Byggt verður á Grænum skrefum þar sem finna má árangursríka leið til að vinna markvisst að umhverfismálum í starfsemi Kennarasambandsins.

 

Markmið KÍ

  • Fylgja Grænum skrefum.
  • Velja umhverfismerktar vörur og þjónustu í innkaupum umfram aðrar.
  • Lágmarka neikvæð umhverfisáhrif vegna notkunar samgöngutækja á vegum KÍ.
  • Lágmarka notkun á hráefnum og orku.
  • Færa grænt bókhald.
  • Flokka og skila endurnýtanlegum úrgangi.
  • Fræða starfsfólk um umhverfismál og auka innra umhverfisstarf.
  • Hvetja starfsfólk til að tileinka sér vistvænan lífsstíl.

 

Fréttin birtist fyrst í Skólavörðunni, haustútgáfu 2020.