Flogið til Hafnar í Hornafirði með Erni

Fréttir|29. nóvember 2023

Flugfélagið Ernir býður félögum Orlofssjóðs gjafabréf til Hafnar í Hornafirði á ný.

Það er sérstaklega ánægjulegt að segja frá því að flugfélagið Ernir hefur ákveðið að bjóða félagsfólki gjafabréf fyrir flugi til Hafnar á Hornafirði á ný eftir að hafa, fyrir stuttu, ákveðið að hætta að bjóða sérstök afsláttarsæti til stéttarfélaga.

Verð fyrir félaga er 19.000 krónur og 4 punktar og gildir aðra leið til eða frá Höfn í Hornafirði fyrir félagsfólk Kennarasambandsins, maka og börn.

Hægt er að kynna sér tilboðið og leiðbeiningar vegna kaupanna hér.