Flestir nemendur bera mikið traust til kennara

Líðan nemenda er almennt góð skv. rannsókn á vegum Rannsóknastofu í tómstundafræðum Háskóla Íslands.
Um 90% nemenda svara að þeim líði þokkalega eða mjög vel í skólanum en um 10% nemenda segjast ekki líða vel í skólanum.
Niðurstöður rannsóknarinnar Heilsa og lífskjör skólanema sem unnin er að tilstuðlan Alþjóðaheilbrigðismálastofnunarinnar (e. WHO) byggja á svörum rúmlega 7.000 íslenskra nema.
Um 81% nemenda í 6. bekk og 65% í 10. bekk telja að kennurum sé annt um sig sem er jákvæð niðurstaða og treysta langflestir kennara sínum og virðist það eiga við nemendur í öllum landshlutum.
Í rannsókninni var spurt um líkamsrækt og hreyfingu og flestir nemendur í öllum aldurshópum hreyfa sig reglulega en þó dregur úr hreyfingu með hækkandi aldri. Matarvenjur eru einnig nokkuð góðar og er ávaxta- og grænmetisneysla almenn meðal nemenda. Í skýrslunni er bent á að aukning á neyslu orkudrykkja er með hækkandi aldri á milli kannanna, en þær eru gerðar á fjögurra ára fresti.
Námsálag eykst milli 6. og 10. bekkjar en tæpur fjórðungur nemenda í 10. bekk telur námsálag of mikið.
Komið er inn á marga þætti í rannsókninni og er þetta ein viðamesta rannsókn samtímans á sviði heilsu og heilsutengdrar hegðunar ungs fólks. Árið 2018 tóku rúmlega 40 lönd þátt.
Heilsa og lífskjör skólanema á Íslands.
Nánar um rannsóknina í heild.