FL vill fjölga undirbúningstímum

Fréttir|24. maí 2018

Starf leikskólakennara hefur breyst mikið á undanförnum áratugum og þörf fyrir aukinn undirbúningstíma til að mæta kröfum um gæða leikskólastarf er gríðarlegt. Himinn og haf er á milli fjölda undirbúningstíma á milli skólastiga og þar hallar verulega á leikskólastigið.

Sjöundi aðalfundur Félags leikskólakennara, sem var haldinn í Hveragerði dagana 14. og 15. maí, beinir því til sveitarfélaganna og annarra rekstraraðila að fjölga undirbúningstímum leikskólakennara í næstu kjarasamningum. 

Ályktun þessa efnis var samþykkt á aðalfundi FL. Í greinargerð með ályktuninni segir að fjöldi lágmarksundirbúningstíma hafi verið sá sami svo áratugum skiptir.

„Samninganefnd FL hefur haldið á lofti kröfu um fjölgun þeirra lengi án árangurs. Starf leikskólakennara hefur breyst mikið á undanförnum áratugum og þörf fyrir aukinn undirbúningstíma til að mæta kröfum um gæða leikskólastarf er gríðarlegt. Himinn og haf er á milli fjölda undirbúningstíma á milli skólastiga og þar hallar verulega á leikskólastigið," segir orðrétt í greinargerðinni. 

Ályktanir aðalfundar FL og önnur gögn fundarins.