FL: Úrslit í kosningum til trúnaðarstarfa liggja fyrir
Fréttir|22. júní 2018

Alls voru sextán félagsmenn FL í framboði.
Niðurstöður í atkvæðagreiðslu Félags leikskólakennara til trúnaðarstarfa á vegum Kennarasambands Íslands liggja fyrir. Kosnir voru fulltrúar FL í vísindasjóð FL/FSL, í sjúkrasjóð, orlofssjóð, vinnudeilusjóð, framboðsnefnd, jafnréttisnefnd, kjörstjórn, siðaráð og vinnuumhverfisnefnd. Alls voru sextán félagsmenn FL í framboði. Engin framboð bárust í framboðsnefnd og útgáfuráð.
Eftirtaldir eru fulltrúar Félags leikskólakennara í nefndum og ráðum KÍ á kjörtímabilinu 2018 til 2022.
- Vísindasjóður FL og FSL– Anna Kristmundsdóttir
Aðrir í framboði sem náðu ekki kjöri: Helena Helgadóttir, Sigurbaldur P. Frímannsson, Sophia Luise Kistenmacher og Þórdís Árný Örnólfsdóttir
- Sjúkrasjóður: Þórunn Óskarsdóttir
Aðrir í framboði: Þórdís Árný Örnólfsdóttir
- Orlofssjóður – Íris Guðrún Sigurðardóttir
Aðrir í framboði sem náðu ekki kjöri: Guðlaug Ásgeirsdóttir, Þórdís Árný Örnólfsdóttir og Þórunn Óskarsdóttir
- Vinnudeilusjóður – Sverrir J. Dalsgaard
(sjálfkjörinn)
- Jafnréttisnefnd – Laufey Heimisdóttir
Aðrir í framboði sem náðu ekki kjöri: Anna Björk Marteinsdóttir, Helena Helgadóttir, Ingibjörg B. Grétarsdóttir, Sólveig Gunnarsdóttir og Þórdís Árný Örnólfsdóttir
- Kjörstjórn – Lóa Björk Hallsdóttir
(sjálfkjörin)
- Siðaráð – Pálína Hildur Sigurðardóttir
Aðrir í framboði sem náðu ekki kjöri: Sólveig Gunnarsdóttir
- Vinnuumhverfisnefnd – Anna Björk Marteinsdóttir
Aðrir í framboði sem náðu ekki kjöri: Sigdís Oddsdóttir
Atkvæðagreiðslan hófst klukkan 12 föstudaginn 15. júní og lauk klukkan 12 í dag, föstudaginn 22. júní.