FL skrifar undir viðræðuáætlun
Fréttir|19. febrúar 2014
Félag leikskólakennara og samninganefnd sveitarfélaganna hafa skrifað undir viðræðuáætlun vegna nýrra kjarasamninga. Ráðgert er að fyrsti fundur samningsaðila verði í byrjun marsmánaðar. Kjarasamningur FL og Sambands íslenskra sveitarfélaga rennur út 30. apríl næstkomandi.