FL og Waldorfleikskólinn Sólstafir skrifa undir kjarasamning

Félagsmenn FL hjá Sólstöfum fá sömu hækkanir og er að finna í samningi Félags leikskólakenannara við Samband íslenskra sveitarfélaga.
Félag leikskólakennara og Waldorfleikskólinn Sólstafir skrifuðu fyrr í dag undir kjarasamning. Gildistími hins nýja samnings er 1. janúar 2022 til 31. mars 2023.
Kjarasamningurinn tryggir félagsmönnum FL hjá Waldorfleikskólanum Sólsöfum sama samning og gerður var við sveitarfélögin. Það á við um allar launahækkanir, fylgiskjöl, samkomulag um afhendingu gagna og samstafsnefndarbókanir. Bæði þær samstarfsnefndarbókanir sem búið er að afgreiða sem og þær samtarfsnefndarbókanir sem mögulega verða gerðar á samningstímanum.
Kjörstjórn KÍ fer nú í að undirbúa og framkvæma atkvæðagreiðslu hjá félagsmönnum FL í hjá Waldorfleikskólanum Sólstöfum.
Með samningi þessum er lokið kjaralotu Félags leikskólakennara.