FL og SSSK undirrita samkomulag

Um er að ræða kjarabætur til handa kennurum sem starfa í skólum innan SSSK.
Félag leikskólakennara og Samtök sjálfstæðra skóla (SSSK) hafa skrifað undir samkomulag um kjarabætur. Um er að ræða eingreiðslu sem félagsfólk FL, sem starfar í skólum á vegum SSSK, fær um áramótin vegna launahækkana sem nema að lágmarki 3,95% af grunnlaunum frá því samningar runnu út, þann 1. júní síðastliðinn.
„Önnur laun hækka um 3,25%. Annaruppbót 1. desember 2024 er 104.800 kr.," segir orðrétt í samkomulaginu.
Samkomulagið gerir jafnframt ráð fyrir að uppfærðar launatöflur, gildi frá 1. júní 2024 og þar til nýr kjarasamningur tekur við.
Viðræðunefnd KÍ, sem skipuð er formönnum allra aðildarfélaga KÍ, samþykkti innanhússtillögu sáttasemjara í lok nóvember, og felur hún í sér fyrrgreindar kjarabætur.
Tengd frétt
Verkföllum frestað til janúarloka