FL og Sólstafir undirrita samkomulag

Fréttir|23. desember 2024

Félagsfólk FL sem starfar í Waldorfsskólanum Sólstöfum fær kjarabætur um áramótin.

Félag leikskólakennara og Waldorfsskólinn Sólstafir hafa skrifað undir samkomulag um kjarabætur. Um er að ræða eingreiðslu sem félagsfólk FL, sem starfar í Sólstöfum, fær um áramótin vegna launahækkana sem nema að lágmarki 3,95%  af grunnlaunum frá því samningar runnu út, þann 1. júní síðastliðinn.

„Önnur laun hækka um 3,25%. Annaruppbót 1. desember 2024 er 104.800 kr.," segir orðrétt í samkomulaginu. 

Samkomulagið gerir jafnframt ráð fyrir að uppfærðar launatöflur, gildi frá 1. júní 2024 og þar til nýr kjarasamningur tekur við. 

Viðræðunefnd KÍ, sem skipuð er formönnum allra aðildarfélaga KÍ, samþykkti innanhússtillögu sáttasemjara í lok nóvember, og felur hún í sér fyrrgreindar kjarabætur. 

 

Tengd frétt

Verkföllum frestað til janúarloka