FL og SNS vísa til sáttasemjara
Fréttir|31. mars 2022

Sameiginleg ákvörðun Félags leikskólakennara og samninganefndar Sambands íslenskra sveitarfélaga.
Samninganefnd Félags leikskólakennara (FL) og Samninganefnd Sambands íslenskra sveitarfélaga (SNS) hafa í sameiningu ákveðið að vísa kjaraviðræðum aðila til ríkissáttasemjara.
„Eftir langar viðræður er eðlilegt á þessum tímapunkti að viðræðurnar fari undir verkstjórn ríkissáttasemjara," segir í sameiginlegri yfirlýsingu FL og SNS.