FL og Skólar ehf. samþykkja viðræðuáætlun og eingreiðslu

Samkomulagið kveður meðal annars á um eingreiðslu að upphæð 105 þúsund krónur sem verður greidd út um næstu mánaðamót, 1. nóvember. Starfsfólk í fæðingarorlofi fær einnig eingreiðslu.
Kennarasamband Íslands, fyrir hönd Félags leikskólakennara, og Skólar ehf. hafa gert samkomulag um viðræðuáætlun vegna komandi kjarasamninga.
Samkomulagið kveður meðal annars á um eingreiðslu að upphæð 105 þúsund krónur sem verður greidd út um næstu mánaðamót, 1. nóvember. Starfsfólk í fæðingarorlofi fær einnig eingreiðslu. Það er sameiginlegur samningur aðila að eingreiðslan sé hluti fyrirhugaðra launabreytinga á gildistíma hinna endurnýjuðu kjarasamninga og verði metin sem hluti af kostnaðaráhrifum þeirra.
Skrifað var undir samkomulagið fyrr í dag. Samkvæmt samkomulaginu er stefnt að undirritun nýs kjarasamnings fyrir árslok.
Skólar ehf. reka Heilsuleikskólana Krók, Kór, Skógarás, Hamravelli og Ungbarnaleikskólann Ársól.