FL og Skerjagarður samþykkja viðræðuáætlun og eingreiðslu

Samkomulagið kveður meðal annars á um eingreiðslu að upphæð 105 þúsund krónur sem verður greidd út um næstu mánaðamót, 1. nóvember.
Kennarasamband Íslands, fyrir hönd Félags leikskólakennara, og Skerjagarður hafa gert samkomulag um viðræðuáætlun vegna komandi kjarasamninga.
Samkomulagið kveður meðal annars á um eingreiðslu að upphæð 105 þúsund krónur sem verður greidd út um næstu mánaðamót, 1. nóvember. Starfsfólk í fæðingarorlofi fær einnig eingreiðslu. Það er sameiginlegur samningur aðila að eingreiðslan sé hluti fyrirhugaðra launabreytinga á gildistíma hinna endurnýjuðu kjarasamninga og verði metin sem hluti af kostnaðaráhrifum þeirra.
Skrifað var undir samkomulagið i fyrradag.
Leikskólinn Skerjagarður er staðsettur við Bauganes í Skerjafirði.