FL og Sigalda skrifa undir kjarasamning

Fréttir|24. september 2014

Félag leikskólakennara og Sigalda ehf. hafa skrifað undir kjarasamning. Samningurinn er samhljóða nýgerðum kjarasamningi FL við Samband íslenskra sveitarfélaga. Sigalda rekur leikskólann Aðalþing í Kópavogi.

Haraldur Freyr Gíslason skrifaði undir samninginn fyrir hönd FL og dr. Guðrún Alda Harðardóttir fyrir hönd Sigöldu.

Rafræn atkvæðagreiðsla um kjarasamninginn hófst klukkan níu í morgun og lýkur klukkan 12 á morgun, fimmtudaginn 24. september.
 

Um atkvæðagreiðsluna

  • Atkvæðagreiðslan fer fram á Mínum síðum á vef KÍ. Kjósendur þurfa að skrá sig inn á Mínar síður með Íslykli. Þegar komið er inn á Mínar síður birtist flipi sem heitir Kosningar. Smellið á kosninguna sem ber heitið Atkvæðagreiðsla um kjarasamning FL (Sigalda ehf.) og þá birtist atkvæðaseðill.
  • Veljið einn af svarmöguleikum sem eru: Já, Nei, Skila auðu.
  • Smellið að lokum á flipann Kjósa og þá birtast skilaboð með orðunum Atkvæði þitt hefur verið móttekið. Ef viðkomandi vill fresta því að greiða atkvæði er hægt að smella á Hætta við kosningu.
  • Nánari upplýsingar um atkvæðagreiðsluna eru veittar á skrifstofu KÍ. Starfsmaður kjörstjórnar er Fjóla Ósk Gunnarsdóttir í síma 595 1111, einnig er hægt að senda Fjólu póst á netfangið fjola@ki.is.