FL og Samtök sjálfstæðra skóla skrifa undir kjarasamning
Fréttir|29. júní 2022

Um er að ræða félagsmenn FL sem starfa í um fjörtíu leikskólum vítt og breitt.
Félag leikskólakennara og Samtök sjálfstæðra skóla (SSSK) skrifuðu í gær undir nýjan kjarasamning. Gildistíminn er 1. janúar 2022 til 31. mars 2023.
Hinn nýi samningur tryggir félagsmönnum Félags leikskólakennara, sem starfa í skólum innan SSSK) sama kjarasamning og gerður var við sveitarfélögin á vordögum. Á þetta við um allar launahækkanir, fylgiskjöl, samkomulag um afhendingu gagna og samstafsnefndarbókanir. Bæði þær samstarfsnefndarbókanir sem búið er að afgreiða sem og þær samtarfsnefndarbókanir sem mögulega verða gerðar á samningstímanum.
Kjörstjórn KÍ fer nú í að undirbúa og framkvæma atkvæðagreiðslu hjá félagsmönnum FL í skólum SSSK.
Leikskólarnir sem um ræðir eru
- Hjallastefnan; Akur, Barnaból, Völlur, Hjalli, Ásar, Litlu Ásar, Hnoðraholt, Bergheimar, Askja, Laufásborg, Hraunborg, Hólmasól, Eyrarskjól, Sólir, Sólborg, Barnaskólinn Garðabæ, Reykjavík og Hafnarfirði
- Skóli ehf.; Heilsuleikskólinn Krókur, Kór, Skógarás og Ársól ungbarnaskóli
- Félagsstofnun stúdenta; Mánagarður, Sólgarður og Leikgarður
- LFA ehf; Fossakot og Korpukot
- Barnaheimilið Ós
- Karen ehf.; Gimli
- Skóli Ísaks Jónssonar ehf
- Lundur efh.; Lundur
- Dignitas ehf.; Regnboginn
- Leikskólinn Sjáland
- Leikskólinn Skerjagarður
- Leikskólinn Sælukot
- Waldorfskólinn Lækjarbotnum; Leikskólinn Ylur
- KFUM/KFUMK; Vinagarður
- Leikskólinn Vinaminni
- Krílasel; Ungbarnaleikskólinn Krílasel