FL og SA funduðu um áskoranir leikskólastigsins
Fréttir|13. nóvember 2019

Formaður FL fór yfir áskoranir leikskólastigsins með fulltrúum frá Samtökum atvinnulífsins og það stóra verkefni sem leikskólastigið stendur frammi fyrir í komandi kjarasamningum.
Haraldur Freyr Gíslason, formaður Félags leikskólakennara, átti fund í Kennarahúsinu með þeim Davíð Þorlákssyni og Ingibjörgu Ösp Stefánsdóttur frá Samtökum atvinnulífsins í morgun. Haraldur bauð þeim til fundar í tilefni af áherslum SA í menntamálum.
Formaður FL fór yfir áskoranir leikskólastigsins og það stóra verkefni sem leikskólastigið stendur frammi fyrir í komandi kjarasamningum. Fínar umræður sköpuðust á fundinum sem án efa verður grundvöllur frekara samtals.