FL og Regnboginn skrifa undir viðræðuáætlun og eingreiðslu
Fréttir|15. október 2019

Samkomulag hefur vert um eingreiðslu að upphæð 105 þúsund krónur.
Kennarasamband Íslands, fyrir hönd Félags leikskólakennara, og Dignitas ehf, vegna Regnbogans leikskóla, hafa skrifað undir samkomulag um viðræðuáætlun vegna komandi kjarasamninga.
Samkomulagið kveður meðal annars á um eingreiðslu að upphæð 105 þúsund krónur sem verður greidd út um næstu mánaðamót, 1. nóvember. Starfsfólk í fæðingarorlofi fær einnig eingreiðslu. Það er sameiginlegur samningur aðila að eingreiðslan sé hluti fyrirhugaðra launabreytinga á gildistíma hinna endurnýjuðu kjarasamninga og verði metin sem hluti af kostnaðaráhrifum þeirra.
Skrifað var undir samkomulagið 9. október síðastliðinn.
Regnboginn leikskóli er staðsettur við Bleikjukvísl í Reykjavík.