FL og Gefnarborg skrifa undir viðræðuáætlun og eingreiðslu

Fréttir|16. október 2019

Samkomulagið kveður á um eingreiðslu að upphæð 105 þúsund krónur.

Kennarasamband Íslands, fyrir hönd Félags leikskólakennara, og Sunnugarður ehf, leikskólans Gefnarborgar, hafa skrifað undir samkomulag um viðræðuáætlun vegna komandi kjarasamninga.

Samkomulagið kveður meðal annars á um eingreiðslu að upphæð 105 þúsund krónur sem verður greidd út um næstu mánaðamót, 1. nóvember. Starfsfólk í fæðingarorlofi fær einnig eingreiðslu. Það er sameiginlegur samningur aðila að eingreiðslan sé hluti fyrirhugaðra launabreytinga á gildistíma hinna endurnýjuðu kjarasamninga og verði metin sem hluti af kostnaðaráhrifum þeirra.

Skrifað var undir samkomulagið 9. október síðastliðinn.

Gefnarborg er staðsett í Garðinum.