FL og Gefnarborg skrifa undir kjarasamning

Fréttir|14. júní 2022

Félagsmenn FL hjá Gefnarborg fá sömu hækkanir og er að finna í samningi Félags leikskólakenannara við Samband íslenskra sveitarfélaga.

Nýr kjarasamningur tryggir félagsmönnum Félags leikskólakennara, sem starfa í leikskólanum Gefnarborg í Suðurnesjabæ, sama samningur og gerður hefur verið við sveitarfélögin. Á það við um allar launahækkanir, fylgiskjöl og bókanir samstarfsnefndar. Þá er átt við þær samstarfsnefndarbókanir sem búið er að afgreiða og þær bókanir sem mögulega verða gerðar á samningstímanum. 

Leikskólinn Gefnarborg er í Samtökum sjálfstæðra skóla (SSSK) en vildi ekki fara sömu leið og aðrir skólar innan vébanda SSSK. 

Enn er ósamið vill alla aðra skóla innan SSSK, bæði staka skóla sem og rekstraraðila sem reka fleiri en einn skóla eins og til dæmis Hjallastefnuna, Skóla ehf. og Félagsstofnun stúdenta.

Ekki hefur tekist að ná saman um samning sem tryggir félagsmönnum FL sama samning og gerður var við sveitarfélögin hjá öðrum sjálfstætt starfandi skólum en Gefnarborg og Aðalþingi.