FL og FSL styrktu RannUng á afmælinu

Félag leikskólakennara og Félag stjórnenda leikskóla styrktu RannUng um 100.000 krónur á sérstakri afmælisráðstefnu verkefnisins í tilefni af 15 ára afmæli þess.
FL og FSL færðu RannUng, Rannsóknarstofu í menntunarfræðum ungra barna, gjöfina á afmælisráðstefnu verkefnisins á Grand Hótel Reykjavík fyrr í dag.
Sigurður Sigurjónsson, formaður FSL, var meðal fyrirlesara á ráðstefnunni ásamt meðal annars Dr. Söru Margréti Ólafsdóttur, dósent við menntasvið Háskóla Íslands, Sulakshna Kumar leikskólakennara og Jóhönnu Einarsdóttur, prófessor á menntavísindasviði HÍ.
Jóhanna, sem er ein af stofnendum RannUng, hvatti alla sem sinna málefnum leikskólans að „taka höndum saman um rannsóknir í leikskólum svo við getum byggt upp frábært leikskólastarf byggt á vísindalegri þekkingu.“
- Hér má lesa meira um RannUng og stórafmælið.
Stofnað var til rannsóknastofunnar í Kennaraháskóla Íslands á vormánuðum 2007. Markmið RannUng er að auka og efla rannsóknir á menntun og uppeldi barna á aldrinum 0 til 8 ára og vera vettvangur fræðaþróunar á því sviði.