FL og FSL segja ákvörðun stjórnvalda vonbrigði

Fréttir|21. desember 2021

Félag leikskólakennara og Félag stjórnenda leikskóla segja engin haldbær sóttvarnarök fyrir því að loka ekki leikskólum. Félögin hvetja sveitarfélög til að loka sínum leikskólum milli jóla og nýárs.

Stjórnir Félags leikskólakennara (FL) og Félags stjórnenda leikskóla (FSL) hafa sent frá sér sameiginlega ályktun þar sem lýst er yfir vonbrigðum með að leikskólum verði ekki lokað á milli jóla og nýárs. Í ályktuninni segir að ekki hafi verið hlustað á raddir félagsmanna en bæði félögin „komu áhyggjum sínum skýrt til skila með góðum fyrirvara en málefnaleg rök voru virt að vettugi". 

„Engin haldbær sóttvarnarrök eru fyrir því að loka ekki leikskólum. Öll börn á leikskólastiginu eru óbólusett og ef horft er til hlutfalls fjölda barna í einangrun er sáralítill munur á milli leik- og grunnskólastigsins. Það er staðreynd að útilokað er að gæta að sóttvörnum milli barna á leikskólastiginu og nánd milli kennara og barna er miklu meiri en á öðrum skólastigum," segir á ályktuninni. 

Þá kemur fram að félögin meta það svo að ástæða sé til að hafa verulegar áhyggjur af afleiðingum þessarar ákvörðunar og sú sóttvarnalega áhætta sem verið sé að taka sé óumdeild. „Hins vegar er staðan nú þannig í leikskólum landsins að eftir að eitt leyfisbréf varð að lögum er raunverulega hætta á að leikskólakennarar fari í stórum stíl að kenna á öðrum skólastigum. Ákvarðanir sem þessar sem ekki eru studdar með sóttvarnarrökum geta ýtt enn frekar undir þá slæmu þróun. Leikskólastigið má engan veginn við því," segir orðrétt í ályktuninni. 

FL og FSL hvetja foreldra og forráðamenn að halda börnum heima á milli jóla og nýárs enda geti samgangur sem fylgir jólahaldi leitt til aukinna smita í leikskólum landsins. Þá eru sveitarfélög hvött til að loka sínum leikskólum dagana milli jóla og nýárs. 

 

Ályktun Félags leikskólakennara og Félags stjórnenda leikskóla:

21. desember 2021

Lýsa vonbrigðum með ákvörðun yfirvalda

Stjórnir Félags leikskólakennara (FL) og Félags stjórnenda leikskóla (FSL) lýsa vonbrigðum sínum með það að ekki var hlustað á raddir félaganna um að loka leikskólum milli jóla og nýárs til að hemja útbreiðslu Covid 19 veirunnar. Félögin komu áhyggjum sínum skýrt til skila með góðum fyrirvara en málefnaleg rök voru virt að vettugi. Engin haldbær sóttvarnarrök eru fyrir því að loka ekki leikskólum. Öll börn á leikskólastiginu eru óbólusett og ef horft er til hlutfalls fjölda barna í einangrun er sáralítill munur á milli leik- og grunnskólastigsins. Það er staðreynd að útilokað er að gæta að sóttvörnum milli barna á leikskólastiginu og nánd milli kennara og barna er miklu meiri en á öðrum skólastigum.

Félögin minna á að grunn- og framhaldsskólar lokuðu dagana fyrir dymbilviku 2021 og leikskólum var haldið opnum alla þá daga fram að lögbundnum frídögum. Þessi ákvörðun lagðist mjög illa í kennara og stjórnendur og upplifðu þeir mikla vanvirðingu gagnvart skólastiginu. Sú ákvörðun leiddi til að í kjölfarið kom upp eitt stærsta hópsmit í íslensku samfélagi í leikskólanum Jörfa. Við höfum því vítin til að varast.

Samgangur stórfjölskyldna er eðlilegur fylgifiskur jólahaldsins og getur það leitt til þess að smitin muni dreifa sér í leikskólum landsins milli jóla og nýárs. Félögin hvetja eindregið til þess að foreldrar haldi börnum sínum heima milli jóla og nýárs. Eins hvetja félögin öll sveitarfélög til að loka sínum leikskólum á milli hátíða.

Það er ástæða til að hafa verulegar áhyggjur af afleiðingum þessarar ákvörðunar. Bæði til skamms tíma og lengri. Sú sóttvarnarlega áhætta sem verið er að taka er óumdeild. Hins vegar er staðan nú þannig í leikskólum landsins að eftir að eitt leyfisbréf varð að lögum er raunverulega hætta á að leikskólakennarar fari í stórum stíl að kenna á öðrum skólastigum. Ákvarðanir sem þessar sem ekki eru studdar með sóttvarnarrökum geta ýtt enn frekar undir þá slæmu þróun. Leikskólastigið má engan veginn við því.

Stjórnir Félags leikskólakennara og Félags stjórnenda leikskóla