FL og Aðalþing skrifa undir kjarasamning

Fréttir|3. júní 2022

Kjarasamningurinn tryggir félagsmönnum FL hjá Aðalþingi sama samning og gerður var við sveitarfélögin.

Kjarasamningur Félags leikskólakennara og sjálfstætt starfandi leikskólans Aðalþings í Kópavogi var undirritaður í húsakynnum Kennarasambandsins fyrr í dag. 

Kjarasamningurinn tryggir félagsmönnum FL hjá Aðalþingi sama samning og gerður var við sveitarfélögin. Það á við um allar launahækkanir, fylgiskjöl og samstafsnefndarbókanir. Bæði þær samstarfsnefndarbókanir sem búið er að afgreiða sem og þær samtarfsnefndarbókanir sem mögulega verða gerðar á samningstímanum.

Viðræðurnar gengu vel og báðir aðilar sammála því markmiði að tryggja í hvívetna með skýrum samningi að félagsmenn FL hjá Aðalþingi sama samning og FL gerði við sveitarfélögin.