FL lýsir yfir áhyggjum af stöðu leikskólamála hjá Hafnarfjarðarbæ

Alvarlegur mönnunarvandi blasir við á hluta leikskóla Hafnarfjarðar og hafa aðvaranir félagsins og leikskólasamfélagsins í Hafnarfirði verið hunsaðar.
Félag leikskólakennara (FL) lýsir áhyggjum sínum af stöðu leikskólamála hjá Hafnarfjarðarbæ. Alvarlegur mönnunarvandi blasir við á hluta leikskóla Hafnarfjarðar og hafa aðvaranir félagsins og leikskólasamfélagsins í Hafnarfirði verið hunsaðar. Félag leikskólakennara lagðist hart gegn opnun allra leikskóla bæjarins síðasta sumar en ekki var hlustað á fagleg rök, hvort sem þau komu frá leikskólakennurum, stjórnendum í sveitarfélaginu, stéttarfélögunum eða öðrum sérfræðingum.
Stjórn FL ályktaði um málið í dag. Í ályktuninni segir meðal annars: „Stærsta verkefni sveitarfélaga er að fjölga leikskólakennurum og hefur verið það lengi. Leikskólastigið hefur þróast hratt sem skólastig. Ákvarðanir samfélagsins um að taka sífellt inn yngri og yngri börn án þess að hugsa málið fyllilega til enda hefur aukið á vandann, aukið mönnunarþörf og hægt á hlutfallslegri fjölgun leikskólakennara þrátt fyrir mikla fjölgun í leikskólakennaranámi undanfarin ár.“
Ályktun stjórnar Félags leikskólakennara er svohljóðandi:
Stjórn Félags leikskólakennara lýsir áhyggjum sínum af stöðu leikskólamála hjá Hafnarfjarðarbæ. Hluti leikskóla Hafnarfjarðar býr við alvarlegan mönnunarvanda. Slíkt gerist ekki í tómarúmi og aðvaranir félagsins og leikskólasamfélagsins í Hafnarfirði hafa verið hunsaðar.
Meðal annars ákvað bærinn að hafa alla leikskóla bæjarins opna í sumar. Félag leikskólakennara lagðist harðlega gegn því og kom þeim skilaboðum skýrt á framfæri.
Það er staðreynd að ekki var hlustað á fagleg rök, hvort sem það var frá leikskólakennurum, stjórnendum í sveitarfélaginu, stéttarfélögunum eða öðrum sérfræðingum.
Stærsta verkefni sveitarfélaga er að fjölga leikskólakennurum og hefur verið það lengi. Leikskólastigið hefur þróast hratt sem skólastig. Ákvarðanir samfélagsins um að taka sífellt inn yngri og yngri börn án þess að hugsa málið fyllilega til enda hefur aukið á vandann, aukið mönnunarþörf og hægt á hlutfallslegri fjölgun leikskólakennara þrátt fyrir mikla fjölgun í leikskólakennaranámi undanfarin ár.
Það var allan tímann vitað að stytting vinnuviku í leikskólum væri snúin án kostnaðar. Leikskólinn er mjög viðkvæmur fyrir mönnun og að því leyti líkari vaktavinnustöðum en dagvinnustöðum.
Það er alveg ljóst að samninganefnd FL mun ræða fjármögnun styttingu vinnuvikunnar við viðsemjanda sinn í næstu kjarasamningum. Undirbúningur þess hófst fyrir löngu á vegum samninganefndar FL og var útbúin reiknivél til að ná utan um og meta þann kostnað (lykilorðið er griddfl). Eins sýnir reiknivélin hvernig hægt er að draga úr kostnaði og mæta styttingunni með styttri dvalar- og eða starfstíma. Félag leikskólakennara mun áfram eiga fundi með sveitarfélögum út um allt land til að ræða þetta mál. Vert er að minna á að það eru sveitarfélögin sem veita sinni samninganefnd umboð, en ekki öfugt.
Undirritaður fyrir hönd stjórnar Félags leikskólakennara lýsir sig reiðubúinn til að koma að lausnamiðuðu samtali við Hafnarfjarðarbæ hvenær sem er.
F.h. stjórnar Félags leikskólakennara,
Haraldur F. Gíslason, formaður