FL leggst gegn sumaropnun

Fréttir|13. febrúar 2020

Félag leikskólakennara (FL) leggst eindregið gegn ákvörðun fræðsluráðs Hafnarfjarðar um að afnema sumarlokanir í leikskólum bæjarins.

Félag leikskólakennara (FL) leggst eindregið gegn ákvörðun fræðsluráðs Hafnarfjarðar um að afnema sumarlokanir í leikskólum bæjarins. Ákvörðun um að hafa leikskóla Hafnarfjarðar opna yfir sumartímann var tekin á fundi ráðsins í gær og gert er ráð fyrir að breytingin taki gildi þarnæsta sumar.

Stjórn FL ályktaði um málið í dag. Í ályktuninni segir meðal annars: „Það er ljóst að ef takast á að  halda leikskólakennurum í kennslu í leikskólum þurfa sveitarfélögin að taka ákvarðanir sem leiða til jöfnunar kennsluskyldu, starfs- og vinnutíma á milli leik- og grunnskólastigsins. Hugmyndir Hafnfjarðarbæjar nú eru þróun í öfuga átt.“

Þá telur stjórn FL að ákvörðun fræðsluráðs sé ekki til þess fallin að auka hlutfall leikskólakennara í leikskólum bæjarins.

Ályktun stjórnar FL er svohljóðandi:

Stjórn Félags leikskólakennara leggst gegn nýframkominni hugmynd Hafnarfjarðarbæjar um að hafa leikskóla sína opna allt sumarið frá og með 2021. Efnið hefur nokkuð verið rannsakað og nægir að nefna rannsókn Önnu Elísu Hreiðarsdóttur og Eyglóar Björnsdóttur frá árinu 2016.

Í rökstuðningi með tillögu Hafnarfjarðarbæjar segir meðal annars

Frelsi foreldra til að taka frí fyrir börn sín í öðrum mánuðum tryggir enn frekar góða þjónustu við barnafjölskyldur og þar með frekari möguleika foreldra til að taka frí á sama tíma og auka þannig samverustundir þeirra með börnum sínum. Fyrra fyrirkomulag hefur sett foreldra og börn í ákveðin vanda yfir sumartímann og foreldrar þurft að leita annarra leiða til að tryggja vistun fyrir börn sín þegar leikskólinn lokar og foreldrar ekki í sumarfríi á sama tíma. Ákvörðunin er ekki einungis tekin út frá niðurstöðu könnunarinnar heldur hafa rannsóknir bent til þess að tengslamyndun barna við foreldra sína á fyrstu æviárum þeirra skiptir miklu máli í uppvexti þeirra og þroska og teljum við því að með þessari ákvörðun séum við að taka stórt skref í barnvænu samfélagi sem við búum við hér í Hafnarfirði.

Að blanda tengslamyndun barna við foreldra sína á fyrstu æviárum þeirra við það hvenær foreldrar fara í frí með börnum sínum er áhugaverð nálgun svo ekki sé fastar að orði kveðið.

Í mörgum nýgerðum kjarasamningum hefur verið samið um 30 daga lágmarksorlof fyrir alla, óháð aldri. Einnig hefur verið samið um styttingu vinnuvikunnar í þeim kjarasamningum sem liggja fyrir. Nálgunin er misjöfn en það er ljóst að heimilt er á mörgum vinnustöðum að safna styttingunni upp yfir árið og fást þá fleiri orlofsdagar. Það er því ljóst að sumarlokun leikskóla, eins og hún hefur verið framkvæmd til þessa, mun ekki tæma þennan orlofsrétt.

Eins og komið hefur fram þá tóku í gildi 1. janúar síðastliðinn lög sem meðal annars kveða á um leyfisbréf þvert á skólastig. Við þá breytingu varð raunveruleg hætta á að leikskólakennarar flytji sig yfir á önnur skólastig vegna ólíkra starfsaðstæðna og vinnutímafyrirkomulags. Það er ljóst að ef takast á að halda leikskólakennurum í kennslu í leikskólum þurfa sveitarfélögin að taka ákvarðanir sem leiða til jöfnunar á kennsluskyldu, starfs- og vinnutíma á milli leik- og grunnskólastigsins. Hugmyndir Hafnarfjarðarbæjar nú eru þróun í öfuga átt.

Samkvæmt opinberum tölum á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga má sjá að á árunum 2015-2018 hefur leikskólakennurum sem starfa við uppeldi og menntun barna í leikskóla fækkað hlutfallslega um 4 prósentustig eða úr 33% í 29% hjá Hafnarfjarðarbæ. Samkvæmt lögum 95/2019 á hlutfallið að lágmarki að vera um 67%. Hugmyndir um að setja meiri þrýsting á kerfið mun alls ekki hjálpa Hafnarfjarðabæ að auka hlutfall leikskólakennara í leikskólum sínum í samræmi við lög. Það sama á við önnur sveitarfélög sem verið hafa að feta þessa slóð eða fyrirhuga það.

Vilji Hafnarfjörður eða önnur sveitarfélög veita foreldrum þjónustu sem tekur tillit til þarfa þeirra hvað varðar töku sumarorlofs verður að finna aðrar lausnir. Leikskólastigið, sem samkvæmt lögum 90/2008 er fyrsta skólastigið, hefur ekkert rými til þess að taka við slíku verkefni.

F.h. stjórnar Félags leikskólakennara,
Haraldur F. Gíslason, formaður